Tískumóment: Lily Allen
Lily Allen á svo sannarlega sitt tískumóment þessa dagana. Eins og Tískuheimur.is greindi áður frá sat hún nýverið fyrir í auglýsingaherferð fyrir töskulínu Chanel og voru myndirnar birtar á dögunum. Þær eru að sjálfsögðu í svarthvítu enda sjálfur Karl Lagerfeld ljósmyndari tökunnar. Svolítill Audrey Hepburn andi er yfir myndunum en þar sést Allen með vatteraðar töskur úr nýrri töskulínu frá Chanel sem kallast Coco Cocoon. Sjálf á Allen safn Chanel taska sem hún sést iðulega með á handleggnum, en það líður eflaust ekki á löngu þar til við sjáum hana með eitt stykki Coco Cocoon tösku sem kemur ekki í verslanir fyrr en í október.
Fyrir utan fyrirsætustörfin kemur Allen með eigin skartgripalínu á markaðinn í haust. Línan skiptist í níu minni þemu sem eru til að mynda innblásin af broskallatattúi sem Allen ber og pandabúningi sem hún klæddist í myndatöku fyrir i-D tímaritið. Hönnunin á að höfða til breiðs hóps, eða nánar tiltekið frá 14 til 40 ára. Línan kallast einfaldlega Lily Allen eftir söngkonunni og mun skartið endurspegla skemmtilegan London stíl hennar. Samkvæmt sjónarvottum inniheldur línan meðal annars hálsmen og hringi sem bera skærlita ávaxta- og dýrahluti á borð við perur og flamingóa. Lily Allen skartið fer í sölu í Lundúnaborg í september.
