Tískumóment: Victoria Beckham
Haust- og vetrarlína Victoriu Beckham; Victoria á tökustað auglýsingaherferðarinnar; Leighton Meester í kjól frá VB.
Victoria Beckham er sífellt að verða traustverðugri í heimi tískunnar þrátt fyrir að hún fari í taugarnar á mörgum. Hún hefur átt erfitt með að átta sig á hæfileikum sínum, en telur sig nú vera búin að finna rétta hillu með tískulínu sinni. Í júlí fór haustlína hennar í sölu í lúxus tískuverslunum í Bretlandi og seinna í mánuðinum sást frú Beckham á tökustað myndatöku auglýsingaherferðarinnar. Tískulína Victoriu inniheldur að mestum hluta kjóla, sem eru allir aðþröngir og kvenlegir, en einnig kápur og slár. Kjólarnir eru allt frá því að vera úr gráu fínlegu ullarefni til ríkulegs, fjólublás silkis.
„Fyrir haust og vetur 2009 vildi ég kanna nýja hönnunarþætti eins og ‚peplum‘ mjaðmastykki, sterk axlasmáatriði auk mismunandi kjólasídda,“ segir Victoria. „Þessi föt eru fyrir konuna sem klæðir sig upp og tekur eftir öllum smáatriðum.“ Victoria er dugleg að auglýsa fatalínuna með því að klæðast kjólunum sjálf og hefur nú þegar verið mynduð í nokkrum þeirra. Einnig sást til leikkonunnar Leighton Meester á tökustað Gossip Girl þáttanna, íklædda rauðum ‚peplum‘ kjól úr haustlínu Victoriu Beckham fyrir hlutverk sitt sem Blair Waldorf.
Vinsældirnar láta ekki á sér standa en nokkrar kjólatýpurnar seldust upp á innan við hálftíma á netversluninni Net-A-Porter. Tískulínan er þó ekki það eina sem frú Beckham er með í pípunum hvað tísku varðar því hún er talin vera forsíðufyrirsæta október tölublaðs ameríska Vogue. Hún hefur aldrei áður fengið það forsíðupláss ein en hún hefur einu sinni birst á forsíðunni og var það með Kryddpíunum árið 1998. Annað sem er á döfinni hjá henni er tískusýning kjólalínunnar sem mun eiga sér stað í New York í september. Þá verður hægt að sjá hvers konar kjóla daman galdrar fram fyrir næsta sumar.
