Tískupóstur Rachel Zoe
Stjörnustílistinn Rachel Zoe hefur opnað glæsilega vefsíðu undir eigin nafni þar sem hún býður upp á tískuráð og segir frá því sem henni finnst flottast hverju sinni. Þar með geta aðdáendur hennar fengið fagmannleg stílistaráð frá henni sjálfri. Þeir sem vilja ekki missa af neinu ættu að skrá sig á póstlista stílistans, sem hún kallar því skemmtilega nafni The Zoe Report. Póstinn sendir hún út nokkrum sinnum í viku, og fjallar hún um aukahluti, skart, skó, fatnað, fegurð og lífsstíl.
Zoe er dugleg að markaðssetja sjálfa sig, hún gaf út bókina Style from A to Zoe árið 2007, en hún er einnig með eigin raunveruleikaþátt, The Rachel Zoe Project. Önnur sería af þáttunum hefst í Bandaríkjunum í haust eftir mikla velgengni þeirrar fyrri. Myndavélarnar fylgdu Zoe eftir á tískuvikunum í febrúar og mars en auk þess verður hægt að sjá hana dressa stjörnuviðskiptavini sína fyrir hina ýmsu viðburði og veislur. Zoe er týpa sem allir elska að hata, en þrátt fyrir það er hún virtur stílisti sem veit alveg hvað hún syngur þegar kemur að tísku.
