Tískustyrkur Vogue og CFDA

frettircfdavogue.PNG

Ohne Titel; Wayne; Wayne; Gary Graham; hálsmen frá Monique Pean.

Á hverju ári veitir félag amerískra fatahönnuða, CFDA, í samstarfi við Vogue ungum hönnuðum styrk til að koma hönnun sinni á framfæri. Þeir tíu hönnuðir sem eru tilnefndir til styrksins þetta árið hafa verið tilkynntir og er fjölbreytnin í fyrirrúmi. Eins og gefur að skilja eru umræddir hönnuðir ekki enn orðnir stór nöfn í tískubransanum, en meðal viðtakenda eru Sophie Theallet, Wayne, Gary Graham og Ohne Titel. Innan hópsins eru líka hönnuðir með sérstöðu, eins og skartgripahönnuðurinn Monique Pean, umhverfisvæna tískumerkið Alabama Chanin og skómerkið Esquivel Shoes.

Anna Wintour sagði við tilkynningu viðtakendanna, „Við höfðum mjög efnilega umsækjendur þetta árið, sérstaklega meðal skartgripahönnuða,“ og átti hún þá við Monique Pean og House of Waris. Viðtakandi styrksins verður krýndur 16.nóvember og fær að launum verðlaunafé og ráðgjöf frá stórum tískuhönnuði. Þetta er sjöunda árið sem styrkurinn er veittur en það eru ekki ómerkilegri hönnuðir en Alexander Wang og Proenza Schouler sem hafa hlotið hann síðustu ár. Styrkurinn svipar til NewGen styrksins sem breska tískuráðið veitir þarlendum tískuhönnuðum. Það verður hins vegar spennandi að sjá hver hlýtur CFDA/Vogue styrkinn þetta árið.