Tískutalentar Danmerkur verðlaunaðir

58231243690588frettirdansk.PNG
Malene Birger ásamt Mary prinsessu; Freja Beha Erichsen og Lasse P voru fyrirsætur ársins; Naja Munthe annar hönnuður Munthe Plus Simonsen; Charlotte Eskildsen hönnuður Designers Remix Collection.

Danmörk hefur gefið af sér ýmsa góða hönnuði og eru þeir fullkomlega samkeppnishæfir borið saman við þá erlendu. Frá Danmörku hafa einnig komið heimsfrægir tískuljósmyndarar og fyrirsætur en ein frægasta danska fyrirsætan er án efa Helena Christensen. Um daginn voru haldin í annað sinn tískuverðlaun þar sem tískutalentar Danmerkur voru verðlaunaðir fyrir vel unnin störf. Verðlaunin eru haldin fyrir tilstuðlan Dansk tímaritsins þar sem þeir Uffe Buchard og Kim Grenaa sitja við stjórn. Dansk er fyrsta danska alþjóðlega tískutímaritið en er nú gjaldþrota og því mögulegt að verðlaunin verði ekki haldin aftur að ári.

Það var margt um manninn á verðlaunaafhendingunni, rjóminn af tísku- og samkvæmisfólki Danmerkur var þar samankominn. Mary prinsessa fékk heiðurinn að afhenda verðlaun fyrir besta hönnuð ársins sem Malane Birger hreppti. Fleiri hönnuðir og merki sem fengu verðlaun voru Baum und Pferdgarten, Stine Goya og Bruuns Bazaar. Fyrirsæta ársins var Freja Beha Erichsen sem hefur gengið sýningarpalla fyrir alla helstu hönnuði heims. Auk þess voru veitt verðlaun fyrir stílista, förðunarmeistara, hárstílista og tískuljósmyndara ársins, og Paris Texas var valin besta verslunin. Dómarahópinn skipuðu fremsta tískufólk Danmerkur, en þar var að finna ýmsa innlenda tískuritstjóra og einnig erlenda tískublaðamenn.