Tískuverðlaun Mango

83301241118080frettirmango.PNG
Jin Youn Lee; Peter Pilotto og Christopher De Vos; Fiona Sinha og Aleksandar Stanic.

Í gær tilkynntu forsvarsmenn Mango tískuvörukeðjunnar hver hlyti tískuverðlaun þeirra, El Botón, en það var Suður-Kóreski hönnuðurinn Jin Youn Lee sem hreppti hnossið. Tískuverðlaun Mango voru fyrst veitt árið 2007 en þeim er ætlað að hjálpa upprennandi hönnuðum að koma sér á framfæri. Meðal þeirra sem völdu vinningshafann var hönnuðurinn Oscar de la Renta og fyrirsætan fyrrverandi Jerry Hall. Lee fékk 300 þúsund evrur í verðlaun sem á eflaust eftir að koma að góðum notum.

Meðal þeirra sem voru tilnefndir voru Peter Pilotto, Christopher De Vos, Josh Goot ásamt hönnunardúóinu Fiona Sinha og Aleksandar Stanic sem mynda Sinha-Stanic, en samtals voru 12 hönnuðir tilnefndir til verðlaunanna. Verðlaunin eru veitt á átján mánaða fresti í Barcelona og þykir góður stökkpallur fyrir unga hönnuði. „Það er heiður að hafa verið tilnefnd af svo mörgum ungum hönnuðum," sögðu Sinha og Stanic í síðustu viku. „Það er mjög spennandi að hafa verið viðurkennd af svo farsælu fyrirtæki."

Verðlaunahafinn Jin Youn Lee var að vonum ánægður með titilinn, en hann er 34 ára gamall og sýndi sína fyrstu línu fyrir fimm árum. „Eftir 12 ára vinnu á tískusviðinu, tel ég að El Botón Mango tískuverðlaunin munu gefa mér tækifæri til að koma línum mínum á sölu um allan heim," sagði sigurvegarinn í gærkvöldi en hann segir peningaverðlaunin vegleg og að þau muni hjálpa honum að láta markmið sín ganga upp. Auk peningaverðlaunanna fær Lee tækifæri til að hanna línu fyrir Mango keðjuna.