Tískuviðburður Lanvin í London

51331238760241lanvinlondon.PNG
Alber Elbaz með fyrirsætunum sem klæðast allar sumarlínu Lanvin; Elbaz útskýrir skærappelsínugulan einnar axla kjól.

Í tilefni þess að fyrsta Lanvin verslunin opnaði í London á dögunum, flaug Alber Elbaz, yfirhönnuður tískuhússins, sérstaklega til borgarinnar til að halda kynningu á sumarlínu Lanvin. Viðburðurinn var einskorðaður við kvenkynið þar sem Elbaz lýsti líflegum sumarfatnaðinum og hélt stuðinu í áhorfendunum með því að segja brandara, „Ég klæði konur. Ég afklæði þær ekki – því miður. Móðir mín myndi vera glöð ef ég gerði það."

Breskt fjölmiðlafólk í tískubransanum fékk einkakynningu á línunni en kynningin gekk vel að sögn tískuritstjóra Vogue, Lucinda Chambers, „Alber sagði frá á meðan hver fyrirsæta kom fram og hann gaf okkur öll smáatriði um hverja flík fyrir sig ásamt yndislegum frásögnum um líf hans í tískunni." Hún sagði þessa einstöku kynningu hafa verið góða hugmynd, „ég veit ekki um neinn sem getur látið fólk hlæja og geðjast að sér en vera einnig vel upplýstur."