Tískuvika keðjuverslanna

frettir0808.PNG

Þann 7.-11.september næstkomandi mun verða haldin sérstök tískuvika keðjuverslanna á Oxford Street í London undir nafninu High Street Fashion Week. Mun tískuvikan vera forsmekkur af aðaltískuvikunni í London sem hefst 18.september. Er því tískuvikan á Oxford ætluð almenningi á meðan sýningar aðaltískuvikunnar eru flestar aðeins fyrir tískuelítuna og fræga fólkið. Með High Street tískuvikunni geta tískukeðjur á borð við Topshop, Urban Outfitters, H&M og Zara sýnt viðskiptavinum sínum nýjustu línur sínar í formi tískusýningar, sem er ekki venjan hjá verslunum sem þessum.

Tískuvikan mun ekki aðeins innihalda tískusýningu verslana, því þar verða einnig ýmsar uppákomur eins og námskeið, stílistaráðgjöf og lengdur opnunartími. Oxford tískuvikan er hluti af Fashion‘s Night Out tískuhátíðinni sem Tískuheimur.is greindi frá í lok maí, en það er samvinnuverkefni margra heimbsborga um að auka verslunaranda almennings. Dýrari verslanir taka einnig þátt í gleðinni og munu hönnuðir jafnvel láta sjá sig í eigin verslunum og í sumum verða haldin partý opin öllum. Framtakið er vægast sagt frábært og verður eflaust mikil traffík á High Street tískuvikuna, sé tekið tillit til þess að almenningur fær sjaldan tækifæri til að vera gestir á tískuvikum.