Tíunda lína Kate Moss fyrir Topshop
Nú hefur ofurfyrirsætan Kate Moss komið með sína tíundu línu fyrir Topshop keðjuna. Ekki er langt síðan síðasta lína frá fyrirsætunni kom í verslanir, eða snemma í apríl. Sú lína var stíluð inn á byrjun sumarsins en þessi er fyrir hásumarið og því með ekta sumarflíkum. Moss einbeitti sér að því að hanna flíkur sem eiga að vera hentugar í sumarfríið. Hún tók innblástur úr sínum eigin ferðalögum á sólríka staði og er útkoman með ríkulegum áferðum og mikið af skreytingum.
Flíkurnar í hásumarslínunni eru fjölbreyttar og geta hæglega verið notaðar jafnt á daginn sem á kvöldin. Í línunni er að finna mikið af munstruðum kjólum ásamt stuttbuxnasamfestingum. Það er nokkuð framandi fílingur yfir línunni með zebra- og hlébarðamunstrum en jafnframt svolítil hippaáhrif með tie-dye litamunstrum. Efnin sem eru notuð eru meðal annars siffon, bómull og jersey – sem sagt létt og flæðandi. Nokkur bikiní fylgja línunni sem og klútar og aðrir aukahlutir.
Nýjasta Kate Moss fyrir Topshop línan verður komin í Topshop hér á landi fyrir helgina.
