Tölvuleikur um tískuvikur
Sviðsett mynd með þeim Önnu Wintour og André Leon Talley frá Vogue á skjánum; förðunarmeistarinn Pat McGrath.
Tíska og tölvuleikir eru orð sem vanalega fara ekki saman, en það gera þau nú. Fréttir þess efnis að tölvuleikur um tískuvikur fari á markað á næsta ári náðu hámarki í síðustu viku. Það eru fyrirtækin 505 Games og IMG sem framleiða leikinn, en förðunarmeistarinn vinsæli Pat McGrath sá um að útfæra hugmyndina. McGrath ætti að þekkja tískuheiminn vel enda hefur hún oft og mörgum sinnum farðað á tískuvikum. Leikurinn er sagður eiga að veita innsýn í tískuheiminn frá sjónarhorni innanbúðarmanns.
Markhópur leiksins eru konur allt frá unglingsaldri til þeirra á miðjum fertugsaldrinum. Í leiknum áttu meðal annars að geta hannað fatalínur, stjórnað tískumyndatökum og skipulagt tískusýningar. Í honum verður að finna sérfræðinga úr iðnaðinum, fyrirsætur og Hollywood stjörnur en hann verður fáanlegur fyrir iPhone, Nintendo og tæki frá Microsoft og Sony. „Þetta er fullkomið tækifæri fyrir hina venjulegu stelpu sem vill komast inn í tískuiðnaðinn en hefur hefur ekki haft tækifæri til að komast nálægt honum. Núna getur hún snert hann, lært á hann og leikið hann," segir forstjóri 505 Games.
