Topshop opnar í New York

71751238592996frettir0104.PNG

Topshop aðdáendur í Bandaríkjunum hafa þurft að vera ansi þolinmóðir í biðinni eftir að Topshop tískukeðjan opni þar sína fyrstu verslun. Verslunin átti upphaflega að opna síðasta haust í SoHo í New York. Dagsetningunni var fljótlega frestað þangað til í mars vegna vandræða í byggingavinnu húsnæðisins. Í febrúar var það svo gert ljóst að opnunin yrði 2.apríl og geta því amerískir aðdáendur tekið gleði sína á ný, en búist er við miklum hamagangi á morgun við opnunina.

Í samtali við Women‘s Wear Daily á mánudaginn, sagði Sir Philip Green, eigandi Arcadia Group, að verslunin væri sú besta sem Topshop keðjan hefði nokkru sinni gert. Hún er rúmir 3700 fermetrar og á fjórum hæðum. Hún er því gríðarlega stór, en þar verður að meðal annars finna VIP svítu fyrir stjörnurnar og aðstaða fyrir plötusnúða. Í september á síðasta ári sagði Green, „Ameríka er nýtt svæði fyrir okkur og við verðum að ná því nákvæmlega réttu. Búðin getur ekki verið níu af tíu; hún verður að vera 10 af 10."

Fyrirsætan Kate Moss mun vera viðstödd opnunin á morgun og fær heiðurinn að klippa á borðann. Eins og flestum er kunnugt hefur Moss verið í löngu og góðu samstarfi við tískukeðjuna, eða síðan 2007. Í SoHo versluninni verður sér deild með Kate Moss línunni, en línurnar eru fjórar á ári og brátt mun nærfatalína bætast við. Í versluninni verður einnig að finna hönnunarlínur frá Jonathan Saunders og Preen, auk sér skó-, aukahluta- og karlmannadeildar.

Verslunin er staðsett á 47
8 Broadway nálægt Broome Street á Manhattan.