Umdeildar Calvin Klein auglýsingar
Calvin Klein hefur mikið verið á milli tannanna á tískufólkinu í New York fyrir djarfar auglýsingamyndir. Myndirnar eru ekki úr einni herferð, heldur eru það tvær herferðir sem innihalda fáklæddar fyrirsætur. Sú fyrsta sem vakti uppnám voru fyrir gallabuxnalínu Calvin Klein og sést þar kvenkynsfyrirsæta ásamt þremur karlkynsfyrirsætum. Markaðsfræðingi finnast auglýsingarnar, sem eru á stóru skilti í New York, hreint og beint klámfengnar. Myndirnar voru teknar af fræga ljósmyndaranum Steven Miesel en sjónvarpsauglýsingin hefur verið bönnuð til sýningar í Bandaríkjunum.
Í fyrra voru bæði undirfata- og ilmvatnsauglýsingar Calvin Klein með leikkonunni Evu Mendes bannaðar í sjónvarpi í Bandaríkjunum, en eins og Tískuheimur.is greindi frá í maí, fékk Calvin Klein hana aftur í undirfataauglýsingar sem og gallabuxnaauglýsingar. Þær myndir hafa nú birst á netinu og eru þær kynþokkafullar eins og við mátti búast. Francisco Costa, yfirhönnuður Calvin Klein fannst lætin í kringum herferðirnar óþarfar. „Það var ekki ætlunin að vekja upp deilur. Aðeins að gera fallegar auglýsingar. Og ég sem hélt að við værum svo framsækið samfélag, en við erum gjörn á að vera svolítið tilgerðarleg stundum. Þetta er New York. Þetta er 21. öldin."
