Umtöluð fatastærð Löru Stone

frettirlarastone.PNG

Lara Stone á forsíðu W; ásamt Alexander Wang; baksviðs á hátískusýningu Jean Paul Gaultier; í Chanel sýningunni.

Fyrirsætan Lara Stone er í miklu uppáhaldi hjá Carine Roitfeld, ritstjóra Vogue Paris, vegna þess hversu kvenlegan líkama hún hefur miðað við aðrar fyrirsætur. Í síðustu viku var líkami og fatastærð Löru mikið til umræðu á fjölmörgum tískusíðum. Lara hafði farið mikinn í hátískusýningum fyrr í mánuðinum og meðal annars endað Chanel sýninguna. Hollenska fyrirsætan hefur sín sérkenni sem gera hana eftirsótta, í hennar tilfelli er það frekjuskarð og aflitaðar augabrýr. En þó ekki síður kvenlegur líkamsvöxtur sem er sjaldséður á sýningarpöllunum.

Lara er í stærð 8 í bresku númeri eða stærð 6 í amerísku númeri, sem er seint talið flokkast undir stóra fatastærð, en er stórt miðað við að flestar fyrirsætur eru í stærð 0. Lara er á forsíðu ágúst tölublaðs W tímaritsins og í viðtali inni í blaðinu segist hún eiga ‘feita‘ daga. „Ef þú ert borin saman við starfsfélaga þína og þeir eru allir helmingurinn af þér, þá hugsarðu ‚‘Ég er feit‘. En á öðrum dögum hugsa ég ‘Ég er ekki svo slæm‘. Lara Stone virðist því hafa sömu áhyggjur og við hin, þó að í hennar tilfelli sé það óþarfi. Í samtali við W sagði hún einnig að margir segi við hana að það sé gott að sjá fyrirsætu sem 'brotnar ekki í tvennt' þegar hún er snert.

Vöxtur Löru þykir minna á ofurfyrirsætur níunda áratugarins þegar fyrirsætur litu almennt út eins og konur. Henni hefur einnig oft verið líkt við Brigitte Bardot og má glögglega sjá þá líkingu á W forsíðunni. Talið er að Lara geti boðað byltingu hvað líkamsgerðir varðar í heimi fyrirsæta en flestum finnst tími til kominn að snúa við blaðinu. Ritstjóri breska Vogue, Alexandra Shulman, er allavega á þeirri skoðun en hún sendi bréf til hönnuða sem lak til fjölmiðla. Í bréfinu gagnrýnir Shulman hönnuði fyrir að senda of litlar sýningarflíkur til tímarita sem svo neyðast til að ráða grannar fyrirsætur. Shulman opnaði allavega umræðuna en nú er að bíða og sjá hvort hún hafi einhver áhrif.