Undirfatasýning í London
Yfirskrift undirfatasýningarinnar; gríma (29 pund) og armband (25 pund) frá La Perla.
Fyrir rúmri viku opnaði sýning í tískusafni Lundúna, The Fashion and Textile Museum, um undirföt í gegnum tíðina. Sýningin ber nafnið Undercover: The Evolution of Underwear og er þar hægt að líta á framfarir og þróun undirfatahönnunar. Í tilefni sýningarinnar hefur undirfatamerkið La Perla hannað blúnduarmband og grímu sem eru til sölu á safninu til styrktar baráttunni við brjóstakrabbamein.
Ofurfyrirsætan Elle Macpherson var viðstödd opnun sýningarinnar. Hún er góðkunn undirfatahönnun en hún stofnaði undirfatamerkið sitt Elle Macpherson Intimates fyrir nánast tveimur áratugum, eða árið 1990. Undirföt hennar eru þau mest seldu yfir gjörvallt Bretland. Það var vegna þeirrar reynslu sem safnið bað Elle um að hanna sérstaka línu fyrir sýninguna.
Sýningarstjórinn útskýrði við opnunina hvað sýningin nær yfir. „Þróun á undirfötum hefur fylgt þjóðfélags- og efnahagstímum eftir og þessi sýning kortleggur það hvernig kvenmannsundirföt hafa þróast síðustu öldina – og inniheldur það allt frá upphafi stríðsins til breytinga á hlutverkum kvenna í samfélaginu – frá hagnýtum hluti til flíka sem búa yfir fegurð."
Þeir sem eiga því leið um London einhvern tímann á næstu þremur mánuðum ættu að líta inn á tískusafnið og skoða öll fögru undirfötin. www.ftmlondon.org
