Væntanlegt brúðkaup Marc Jacobs

72891241710004frettirjacobs.PNG

Hönnuðurinn Marc Jacobs tilkynnti trúlofun sína í mars, en hinn heppni er Brasilíumaðurinn Lorenzo Martone sem starfar í auglýsingageiranum. Í kjölfar fréttarinnar fóru Jacobs og Martone í trúlofunarferð til heimahaga Martone, Sao Paulo. Það var Martone sem bað Jacobs eftir eins árs samband en hann hafði gefið trúlofunina í skyn á tískuvikunni í París í byrjun mars þegar hann sagði það vera góða hugmynd að giftast í St.Barts um jólin.

Nýlega opinberuðu Jacobs og Martone dagsetningu brúðkaups síns, en það mun vera haldið í júní í Provincetown í Massachusetts, og svo mun vera haldin stór veisla í St.Barts í desember, sagði Lorenzo jafnframt. Brúðkaupið verður án efa stórt og gestalistinn langur enda á Jacobs marga góða vini innan tískuheimsins. Hann er meðal annars góðvinur Victoriu Beckham og Madonnu sem báðar hafa sitið fyrir í auglýsingum hans.

Fréttirnar af sambandi Jacobs og Martone stoppa ekki hér, því þeir hafa sagst vera í ættleiðingarhugleiðingum. Í viðtali við New York Times sagði Jacobs, „við erum að kaupa okkur hús saman, okkur langar að eignast börn." Umrætt hús er í West Village í New York, en Jacobs hefur verið búsettur í París undanfarið. Gleðifréttirnar hreinlega umlykja parið þessa dagana.