Valentino á hallandi fæti

76051237316180frettir1703-2.PNG
Frá vinstri: Alessandra Facchinetti, Maria Grazia Chiuri og Pier Paolo Piccioli eftir hátískusýninguna í lok janúar á þessu ári.

Valentino lagðist í helgan stein snemma á síðasta ári og síðan þá hafa þrír yfirhönnuðir hannað fyrir tískuhúsið. Fyrst varð það Alessandra Facchinetti sem stóð sig alveg ágætlega að hanna fjórar línur fyrir Valentino. Það er hins vegar erfitt að feta í fótspor hins dáða Valentino og eftir tæplega ársvinnu var hún látin fara. Inn komu þau Maria Grazia Chiuri og Pier Paolo Piccioli en nýjasta lína þeirra, haustlínan 2009, olli talsverðum vonbrigðum gagnrýnenda.

Óttast er að Maria og Pier hljóti sömu örlög og Alessandra en það sem þótti slakt var að línan skyldi ekki innihalda einkenni Valentino, rauða kjólinn. Hátískusýning Mariu og Pier, sem var jafnframt fyrsta sýning þeirra fyrir merkið, þótti of lík fyrri hönnun Valentino og því var vonast eftir meiri áhrifum frá þeim sjálfum í þetta skiptið. Það var þó eitthvað sem vantaði í línuna og því alveins von á því að dúóið víkji frá Valentini veldinu. Nema að þau fái annað tækifæri til að sýna tískuheiminum hvað í þeim býr.

Gagnrýnendur lofsömuðu þó eitt við sýninguna – en það var staðsetninginn. Sýninginn var haldinn í Galerie des Moulages í París og voru gluggarnir opnir með útsýni að Eiffel turninum. Þótt það sé alltaf happ að vera með flottan sýningarstað þá boðar það ekki á gott að hann taki alla athygli af fatnaðinum. Blaðamaður á Los Angeles Times sagði að sama kápan hefði birst ótal oft í nokkrum mismunandi útgáfum, á meðan Suzy Menkes hreinlega óskaði eftir Alessandra Facchinetti aftur.