Valentino segir stórstjörnur ljótar í stuttum kjólum
Valentino Garavani; Victoria Beckham; Gisele Bundchen; Diane Kruger.
Dramakóngurinn og fyrrum hönnuðurinn Valentino hefur verið í tískufréttum undanfarið fyrir að kalla þær dömur sem völdu stutta kjóla á Costume Institute galakvöldinu í byrjun maí, ljótar. Þannig er mál með vexti að Marc Jacobs, einn gestgjafa kvöldsins, hvatti kvenkynsgesti til að mæta í stuttum kjólum en fyrri ár hafa síðkjólar verið venjan. Sagan segir að Anna Wintour, ritstjóri Vogue, hafi stutt þá ákvörðun, en Jacobs vildi víst fá meiri næturklúbbaáhrif yfir þetta virðulega kvöld.
Hinum ítalska Valentino, sem er af gamla skólanum, þótti hugmyndin aftur á móti slæm. Hann veitti The Observer sína skoðun á málinu. „Mér finnst núna allar stelpurnar vera ljótar," sagði Valentino og hristi höfuðið, hneykslaður á míníkjólunum. „Ég sá myndirnar frá galakvöldinu í síðustu viku og ég hef aldrei séð neitt eins ljótt, allar stelpurnar eru með leggina bera í hræðilegum hlutföllum," bætti hann við. Blaðamaður The Observer sagði hann svo hafa bent fingrinum eins og vonsvikinn skólameistari og sagt „nei, nei, nei".
Ummælin hafa þótt nokkuð óheppileg fyrir Valentino, enda margar sem klæddust stuttum kjólum þetta umrædda kvöld en þeirra á meðal voru ekki ómerkilegri en fyrirsætan Gisele Bundchen og leikkonan Diane Kruger. Allar þær sem Marc Jacobs klæddi fyrir kvöldið voru í stuttum kjólum, en það voru til að mynda Kate Moss, Victoria Beckham og Madonna. Sumir telja hinn tæplega áttræða Valentino einfaldlega eiga erfitt með að sætta sig við nútímatískuheiminn.
