Valentino verðlaunaður

48801239467245frettir1104.PNG
Anne Hathaway, Valentino, Gwyneth Paltrow, Tom Ford; Valentino á rauða dreglinum; Giancarlo Giammetti, maki Valentino.

Tískuhönnuðurinn Valentino var á dögunum krýndur Rodeo Drive Walk of Style verðlaunum á frægu verslunargötunni Rodeo Drive í Beverly Hills en Valentino er þrettándi handhafi verðlaunanna. Meðfram verðlaunaafhendingunni var einnig opnuð sýning utandyra með rauðu þema en rauður er einkenni Valentino. Sýningin er virðingarvottur fyrir margra áratuga vinnu hins goðsagnakennda hönnuðar.

Dagsetning verðlaunaafhendingunnar, sem var í byrjun apríl, var sérstaklega valin til að vera á sama tíma og frumsýning heimildarmyndarinnar 'Valentino: The Last Emperor' á vesturströnd Bandaríkjanna. Síðan hönnuðurinn lagðist í helgan stein hefur hann verið duglegur að birtast á opinberum vettvangi og þá oft með stórstjörnur sér við hlið, en leikkonurnar Anne Hathaway og Gwyneth Paltrow eru dyggir stuðningsmenn hans.

Eins og gefur að skilja var Valentino þakklátur fyrir verðlaunin, „ég er algjörlega drukkinn af hrósyrðum," sagði hann í ræðu sinni við verðlaunaafhendinguna, „á mínum langa ferli hef ég oftar en ekki færst undan því að fólk segi góða hluti um mig, en nú þegar ég er eldri þigg ég það." Hann sagði einnig að Rodeo Drive væri ein mikilvægasta tískugatan í heiminum, „kannski mun ég einn daginn koma aftur til að fá önnur verðlaun," sagði hann að lokum.