Venjulegt fólk geti keypt miða á tískusýningar

82801239899525frettir1604.PNG
Madison Square Garden; tískusýningarstaður í Bryant Park; fyrirsæta á tískusýningu.

Tískudagblaðið Women‘s Wear Daily spurði hönnuði á tískuvikunni í febrúar hvort þeir gætu hugsað sér að selja inn á sýningar sínar til að græða peninga og auka umtal. Þrátt fyrir efnahagskreppuna sögðu margir hönnuðir nei. Diane von Furstenberg og Michael Kors sögðu það slæma hugmynd þar sem viðskiptavinir þeirra yrðu ringlaðir að sjá föt sem þeir gætu ekki keypt fyrr en eftir sex mánuði.

WWD, eins og dagblaðið er jafnan kallað, spurði hönnuðina í kjölfar könnunar sem þeir gerðu þar sem þeir spurðu yfir hundrað konur á götum New York borgar hve mikið þær myndu borga fyrir miða á tískusýningu. Meðaltal verðsins sem konurnar nefndu var 160 dollarar eða rúmar tuttugu þúsund íslenskar krónur. Hönnuðir myndu án efa græða slatta ef talsvert magn miða væru seldir.

New York Magazine segir þessa upphæð út í hött þar sem tískusýning stendur yfir í um það bil tíu mínútur. Þeir bæta við að líklega sé önnur ástæða fyrir því að hönnuðir vilji ekki ‚venjulegt fólk‘ á sýningarnar sínar. „Tískuvikan er viðburður sem fær ritstjóra, innkaupafólk, fína fólkið, stjörnurnar og aðra í iðnaðinum líða einstökum, merkilegum og tilheyra mjög sérstökum og viðsjálum heimi."

Það virðist þó sem þetta verði að veruleika, því á tískuvikunni í september næstkomandi ætla ný samtök að byrja að selja miða á sýningar sem fara fram í Madison Square Garden. Hagnaðurinn verður ekki illa varinn en hann fer í góðgerðarstörf til styrktar börnum. Enn hefur ekki verið gefið upp miðaverð en það verður líklega ekki með lægsta móti.

Sýningarnar sem selt verður inná eru ekki hjá reyndum og frægum hönnuðum eins og margir vonuðu. Samtökin sem standa fyrir miðasölunni á Madison torgi eru ekki í samstarfi við IMG sem standa á bakvið alvöru tískuvikuna, og þar er ekki er hægt að kaupa miða. Hönnuðirnir sem sýna á Madison torgi eru ungir að reyna að koma sér á framfæri, en mörgum á eflaust eftir að finnast það áhugavert.