Viðtakendur NEWGEN styrksins
Haustlínur hönnuða 2009. Frá vinstri: House of Holland; Danielle Scutt; Meadham Kirchhoff; Peter Pilotto.
Breska tískuráðið tilkynnti nýverið hvaða heppnu hönnuðir hljóta styrkinn NEWGEN, eða Ný kynslóð, fyrir næstu tískuviku í London sem haldin verður í september. Hönnuðirnir fá ýmist styrk til tískusýningar á sýningarpalli eða annars konar kynningu á línu sinni. Það eru samtals 17 hönnuðir sem hljóta styrkinn í þetta skiptið, bæði fata- og aukahlutahönnuðir. Eins og nafnið gefur til kynna eru það ungir og upprennandi tískuhönnuðir sem fá þarna tækifæri til að koma hönnun sinni á framfæri. „Við heyrum mikið um að það hvað sköpunargáfa blómstrar alltaf mikið í kreppu – og hvernig hún riður brautina fyrir tískuorku næsta tímabils," segir Sarah Mower. "London er staðurinn þar sem þetta gerist."
Sumir hönnuðirnir eru nú þegar nokkuð þekktir, allavega í heimalandinu, en það eru til dæmis Henry Holland, Danielle Scutt, Meadham Kirchhoff og Peter Pilotto. Önnur nöfn, eins og Mark Fast og Mary Kantrantzou, eru þó að færa sig upp á skaftið en þeim er báðum spáð miklum vinsældum í framtíðinni. Aðrir efnilegir viðtakendur styrksins eru Louise Gray, Cooperative Designs, LP.BG, Michael van der Ham og Sykes að ógleymdu tískumerkinu KTZ sem fæst í KronKron hér á landi. Aukahlutahönnuðir sem hlutu styrkinn eru Atalanta Weller, Dominic Jones, Fred Butler og Michael Lewis.
Á næstu vikum mun Tískuheimur.is taka fyrir nokkra af fyrrnefndum upprennandi hönnuðum og fjalla um áhugaverðar tískulínur þeirra og framtíðaráhorf.
