Viktor & Rolf hanna fyrir óperu
Viktor Horsting og Rolf Snoeren; Shalom Harlow sýnir sumarlínu Viktor & Rolf 2009; búningur persónunnar Agöthu í væntanlegri óperu.
Þýska hönnunardúóið Viktor & Rolf hafa hannað búninga fyrir óperuna 'Der Freischutz'. Varla er hægt að hugsa sér betur tilfallna hönnuði fyrir verkefnið enda Viktor Horsting og Rolf Snoeren þekktir fyrir stórkostlega hönnun í listrænum anda þar sem hver lína er vel úthugsuð heildarhugmynd. Hönnuðurnir notuðu tæpa milljón Swarovski kristalssteina í búningana til að skapa einstakt yfirbragð eins og þeim einum er lagið.
Viktor & Rolf hafa reynslu af búningagerð því árið 2004 gerðu þeir búninga fyrir hollenska dansleikhúsið. Hvað Der Freischutz varðar þá koma sólóistar óperunnar fram í þrívíddarútfærslum í skærum litum á meðan kórinn fær hefðbundna þýska búninga. Óperan er frumsýnd um næstu mánaðarmót í Baden-Baden.
Sýningar Viktor & Rolf hafa alltaf vakið mikla athygli, og þá sérstaklega útfærsla sýningu sumarlínu þessa árs. Þar má sjá fyrirsætuna Shalom Harlow ganga sýningarpallinn og sýnir hún allar línuna. Engir áhorfendur voru að sýningunni og því einungis hægt að sjá myndband af henni. Nokkar flíkur í sumarlínunni voru með lituðum Swarovski kristalskreytingum og aðrar voru með þrívíddarbrag en svo er spurning er hvernig þeir útfæra óperubúningana.
