Vilt þú vinna við tísku?
Teen Vogue, tímarit úr smiðju Vogue sérstaklega ætlað yngri kynslóðinni, hefur gefið út handbók fyrir þá sem dreymir um að starfa í tískuiðnaðinum. Bókin kallast The Teen Vogue Handbook: An Insider's Guide to Careers in Fashion og verður fáanleg í byrjun október. Tímaritið er nú þegar farið að kynna bókina sem inniheldur ráð frá frægu fólki innan tískubransans en einnig ungu fólki sem er enn að feta sig innan bransans. Ritstjóri Teen Vogue, Amy Astley, segir ástæðuna fyrir bókinni vera sú að mjög margir lesendur sendi tímaritinu póst um hvernig þeir eigi að fara að því að mynda sér starfsferil innan tísku. „Það er gríðarlega mikill áhugi á tískuiðnaðinum en algjör skortur á upplýsingum um hvernig á að brjótast inn.“
Í bókinni er hægt að fá hagnýtar upplýsingar um hvernig á að komast upp metorðastigann innan tískuheimsins, en það er nokkuð erfiðara en á mörgum öðrum starfsvettvöngum. „Þetta er ekki eins og að fara í læknaskóla og verða læknir, eða fara í lagaskóla og verða lögfræðingur,“ segir ritstjórinn. Bókinni er skipt í kafla eftir starfsgreinum, eftir því hvort lesandinn leitast eftir að verða hönnuður, tískublaðamaður, stílisti, förðunarfræðingur, hárstílisti eða ljósmyndari. Í bókinni er því lýst hvaða nám til þarf, hvaða hæfileika viðkomandi þarf að búa yfir, hvernig á að afla sér reynslu, hvernig á að næla sér í lærlingastöðu og svo framvegis.
Hér fyrir neðan má sjá kynningarmyndband bókarinnar.
