Vintage sólgleraugu á góðu verði

45541239550370frettirsolgleraugu.PNG

Fyrir sólgleraugnaaðdáendur er tilvalið að benda á vefverslunina Giant Vintage í tæka tíð fyrir tíma sól og sumars. Verslunin selur allar gerðir af vintage sólgleraugum fyrir bæði karla og konur. Giant Vintage er staðsett í hinni sólríku Los Angeles en þeir senda pantanir um allan heim. Sólgleraugun eru flest vintage og mörg þeirra ónotuð og því í góðu standi. Vintage gleraugu bjóða upp á svo mikið meira en ný þar sem þau hafa eftirsótt útlit margra flottustu sólgleraugna fortíðarinnar.

Hjá Giant Vintage er hægt að fá sólgleraugu frá áttunda, níunda og tíunda áratugnum, en samtals bjóða þeir upp á átján hundruð týpur af gleraugum. Þar er meðal annars að finna Wayfarer og Clubmaster eftirlíkingar, ýmsar gerðir af aviator gleraugum, hringlaga gleraugu í John Lennon stíl (eitt heitasta sólgleraugnatrend sumarsins) ásamt munstruðum og skærlita umgjörðum. Þeir bjóða einnig upp á sérstök og öðruvísi sólgleraugu fyrir þá djörfu.

Það er óteljandi úrval af sólgleraugum hjá Giant Vintage og er verðið mjög gott, allt frá 6 dollurum og upp úr, þó að algeng verð séu í kringum 20 dollara eða 2.500 íslenskar krónur. Með viðbættum 1.000 króna sendingarkostnaði eru kaupin samt sem áður nokkuð hagstæð. Þeir sem hafa áhuga á töff sólgleraugum ættu því að skella sér inná www.giantvintage.com og næla sér í eitt stykki svalt par fyrir komandi sumarmánuði.