William Rast alþjóðavæðist

frettirwrast.PNG
Justin Timberlake; haust- og vetrarlína William Rast 2009-2010; Johan og Marcella Lindeberg.

Justin Timberlake er annar forsvarsmanna tískumerkisins William Rast sem hefur orðið sívinsælla undanfarið. Merkið stofnaði hann ásamt góðvini sínum, Trace Ayala. William Rast er hannað af sænsku hjónunum Marcella og Johan Lindeberg og bjóða þau bæði upp á karlmanns- og kvenmannslínur. Nýlega ákvaðu Justin og Trace að stíga út fyrir heimalandið og fara með William Rast í sölu í Bretlandi. Í tilefni þessa var haldin heljarinnar tískusýning í stóru deildarversluninni Selfridges í lok júní. Nokkrum dögum seinna sýndu þeir línu sína á Bread and Butter sýningunni í Berlín, en auk þess var línan nýlega fáanleg í Colette í París.

En hverja ætli Justin og Trace hugsi línuna fyrir? „Línan er fyrir stelpur sem okkur líkar við,“ sagði Justin í samtali við breska Vogue á tískusýningunni í Selfridges. „Við sköpun línunnar hugsuðum við um stelpur eins og Carré Otis og Debbie Harry; kynþokkafulla strákastelpu sem lítur vel út án þess að reyna það.“ Haustlínan inniheldur meðal annars snjáð gallaefni og leðurjakka sem London-, Berlínar- og Parísarbúar geta nú nálgast í borgum sínum. Deildarstjóri kvenfatnaðar í Selfridges segir William Rast bjóða upp á nýtískufatnað sem er í senn klæðilegur. „Í línunni blandast amerísk arfleifð við smáatriði sem ráðast af tískustraumum,“ segir hún.

Í öðrum fréttum þá hafa aðalhönnuðir William Rast, þau Marcella og Johan, stofnað sitt eigið merki sem þau kalla Paris68. Þau munu kynna línuna í haust og verður hún bæði fyrir karla og konur. Miðað við lýsinguna verða áherslurnar ekki ósvipaðar William Rast - gallaefni og leður - en fyrir konurnar verður einnig fókus á fínleg prjónaefni og kjóla. Johan stofnaði merkið J.Lindeberg sem margir kannast eflaust við en hann hefur ekki verið viðriðin fyrirtækið síðan árið 2007. Talið er að hjónin muni þó enn verða Justin innan handar við hönnun William Rast línunnar.