Stíll
Frumsýning The September Issue
Efsta röð: Sienna Miller (í Thakoon) og Anna Wintour (í Prada), Lorenzo Martone og Marc Jacobs, Phillip Lim, Georgina Chapman (í Marchesa). Miðröð: Tory Burch (í Narciso Rodriguez), Alexa Chung, Vera Wang (í eigin hönnun), Caroline Trentini. Neðsta röð: Karlie Kloss (í Jason Wu) og Jason Wu, Renée Zellweger (í Carolina Herrera), Cassie, Bee Schaffer, Chanel Iman (í Versace).
Á miðvikudagskvöld var haldin frumsýning á myndinni sem tískuheimurinn hefur beðið eftir, The September Issue. Anna Wintour, stjarna myndarinnar, var auðvitað á staðnum ásamt Siennu Miller, forsíðustúlku septemberheftis Vogue árið 2007, en myndin fjallar um gerð þess tölublaðs. Miller kom fersk úr fríi á Ibiza en hún klæddist sæbláum Thakoon míníkjól á rauða dreglinum. Tískuhönnuðir á borð við Marc Jacobs, Carolina Herrera og Oscar de la Renta létu að sjálfsögðu sjá sig enda góðvinir Wintour. Auk þeirra var nokkrum tryggum Vogue fyrirsætum boðið á frumsýninguna ásamt Hollywood stjörnum eins og Renée Zellweger og Sean ‘Diddy‘ Combs. Gestirnir voru almennt ánægðir með myndina. „Ég elskaði hana,“ sagði hönnuðurinn Peter Som.
Hér fyrir neðan má sjá viðtal við Önnu Wintour, Sean 'Diddy' Combs, Tory Burch og Jason Wu á frumsýningunni.
Hálfsmánaðar tískumaraþon Siennu Miller
Sienna Miller hefur tekið rauða dregilinn með trompi undanfarnar vikur við kynningu á nýjustu mynd sinni G.I. Joe: The Rise of Cobra þar sem hún leikur barónessuna. Þó að leikkonan hafi alltaf þótt töff í tauinum tók hún stíl sinn upp á næsta stig fyrir kynningarherferðina og klæddist djörfum samsetningum samkvæmt nýjustu tískunni. Miller hefur sagt bless við bóhemstílinn og tekið upp örlítið fágaðri, og stundum rokkaðri, stíl. Takið eftir fjölbreyttum hárgreiðslum og förðunarvali eftir klæðnuðum, eins og t.d. tagl og dökk augnförðun við glansdragtina frá Gucci, og glamúrkrullur og rauður varalitur við brúnlitaða síðkjólinn.
Kynningarherferðin var mikil heimsreisa, hún hófst í Sydney, Ástralíu og flökkuðu leikararnir til Evrópu og Asíu þangað til að reisan endaði loks í Los Angeles. Á tímabilinu klæddist Sienna óteljandi flíkum og skóm frá merkjum á borð við Gucci, Diane von Furstenberg, Chloé, Loewe og Isabel Marant. Hún lét aðeins sjá sig einu sinni í hverri flík (eins og stórstjörnum sæmir) og einn daginn klæddist hún hvorki meira né minna en fimm klæðnuðum fyrir mismunandi viðtalsþætti og viðburði. Miller slappar nú af á lúxus sumarleyfisstað stjarnanna, Ibiza á Spáni, eftir alla erfiðisvinnuna við kynningu myndarinnar.
Stíllinn í Köben
Sólin skein skært í Kaupmannahöfn um liðna helgi þar sem fram fór tískuvika. Götustílsljósmyndarar voru staddir í gömlu höfuðborginni til að mynda alla tískuna – utan sýningarpallanna. Þrátt fyrir að haustið sé eiginlega komið hér á landi þá voru Kaupmannahafnarbúar enn í sumarklæðum eins og gallastuttbuxum og míníkjólum, auðvitað með sólgleraugun á sínum stað. Frændur okkar Danir eru svo sannarlega stíliseraðir en þó með vænum slatta af kæruleysi. Hér að ofan má sjá flott klæddustu dömurnar að mati Tískuheims.
Myndir: Eddie Newton, Yvan Rodic o.fl.
Emma Watson galdrar fram tískumúnderingar
Í vintage Ossie Clark; í Proenza Schouler; í doppóttum kjól; í Proenza Schouler; í Christopher Kane.
Leikkonan Emma Watson var í kynningarferð fyrir nýjustu myndina um galdrastrákinn Harry Potter nýlega, og vöktu flottir tískuklæðnaðir stjörnunnar mikla athygli. Á frumsýningunni í London birtist Watson á rauða dreglinum í síðum munstruðum vintage Ossie Clark siffon kjól. Hún lét rigninguna ekki spilla fyrir sér og mætti með regnhlíf til að hlífa kjólnum. Í viðtali hjá David Letterman til að kynna myndina mætti hún í drapplituðum kjól úr haustlínu Christopher Kane og á frumsýningunni í New York varð Proenza Schouler kjóll fyrir valinu. Hvort sem Watson hafi verið að fylgjast vel með því sem er í tísku undanfarið eða það sem þykir líklegra, að tískumúnderingarnar séu góðum stílista að þakka, þá lítur hún stórkostlega út.
Watson er jarðbundin þegar kemur að tískuheiminum og hefur engar fyrirætlanir um að gerast tískuíkon. „Ég vil ekki að tíska skyggja á ferilinn minn – það er mín versta martröð,“ hefur hún sagt. Þrátt fyrir nýlegar sögusagnir þess efnis að hún hugi á að hanna eigin fatalínu neitar hún því alfarið. „Ég hef ekki áhuga á að gera það fyrir mitt eigið egó. Ég er ekki hönnuður.“ Hún bætti þó við að hún hefði áhuga á að hanna fatalínu sem væri fyrir gott málefni. Nýjasta slúðrið er að hún sé að hanna línu fyrir People Tree, sem er fatafyrirtæki í sanngjörnum viðskiptum eða fair-trade. Hvað sem því líður þá hefur Emma Watson gengið í gegnum rækilega tískuumbreytingu fyrir Harry Potter túrinn en svo er að sjá hvort hún haldi áfram að velja tískufatnað frá flottustu hönnuðunum á næstunni.
Emma Watson frontar ágúst tölublað breska Elle tímaritsins. Hér fyrir neðan er hægt að líta á bakvið tjöldin í myndatökunni.
