Birkin töskur Victoriu Beckham

51051242659798frettirbeckham.PNG

Töskusafn Victoriu Beckham hefur verið metið á 1,5 milljón punda eða um 290 íslenskar milljónir. Það verð er þó ekki fyrir allar töskur Beckham frúarinnar, því þetta er einungis verðið á stóru safni hennar á Birkin töskum frá Hermés. Löngum hafa Birkin töskur þótt eftirsóttarverðar og hafa oft á tíðum langir biðlistar myndast eftir sérstökum útgáfum töskunnar. Hana hefur verið hægt að fá í ýmsum tegundum af leðri, meðal annars framandi skriðdýraleðrum, og öllum mögulegum litum en stærð þeirra getur einnig verið mismunandi.

Þær fjárhæðir sem Victoria hefur lagt fram fyrir Birkin töskur sínar gætu þó komið sér að góðum notum því kaup á töskunni er talin stór fjárfesting. Taskan er ein af þeim fáu handtöskum sem hækka í verði með tíð og tíma og hafa þær oft verið seldar á uppboðssíðunni Ebay á hærra verði. Að því er fréttir herma á Victoria hundrað stykki af Birkin töskum en það gæti ekki þótt svo ótrúlegt miðað við hve oft hún sést með töskuna á handleggnum. Birkin taskan, sem er skírð eftir leik- og söngkonunni Jane Birkin, er fyrir löngu orðin klassík og mun að öllum líkindum lifa góðu lífi næstu ár og jafnvel áratugi.