Búðu til þitt eigið Louis Vuitton hálsmen
Aukahlutir og skart geta gert mikið til að lappa upp á stílinn og gefa gömlum flíkum ferskan blæ. Svartur kjóll eða annar hlutlaus og klassískur klæðnaður hentar vel þegar áberandi skart á í hlut. Í síðustu viku greindi Tískuheimur.is frá því hvernig hægt væri að breyta joggingbuxum í tískuflík, en nú verða hálsmen tekin fyrir og sýnt hvernig hægt er að gera öðruvísi hálsmen á einfaldan hátt. Umrætt hálsmen er innblásið frá haust- og vetrarlínu Louis Vuitton, en þau vöktu mikla athygli þegar sýninginn átti sér stað í mars.
Hálsmenin í Louis Vuitton sýningunni minntu á músastiga sem maður föndraði sem krakki. Þeir sem kunna enn handtökin, ættu að skella sér í föndurgallann og búa sér til músastigahálsmen à la Louis Vuitton. Það sem til þarf er efni, skæri og límbyssa. Hálsmen Vuitton komu í ýmsum útgáfum og voru þar af leiðandi í mismunandi efnum, eins og leðri og málmi. Það er um að gera að prófa sig áfram með mismunandi efni og liti. Hafa ber í huga að betra er að efniviðurinn sé frekar stífur þar sem hálsmenið þarf hafa strúktúr.
Góð ráð við hálsmenagerðina
* Ekki nota kreppappír sem músastigar eru oft búnir til úr. Pappírinn er of viðkvæmur og rifnar auðveldlega.
* Ekki hefta hlutana saman þar sem það er ekki fallegt að sjá í hefti.
* Gott er að hafa reglustiku við hendina og mæla efnishlutanna svo þeir séu allir jafn langir.
* Þegar er menið er fest saman er sniðugt að nota fallegan borða og setja slaufu á hann. Í LV hálsmenin eru notaðir lásar til að festa endana saman, en borði er ódýrari lausn.
* Fyrir öðruvísi útgáfur er t.d. hægt að nota tvær tegundir af mismunandi efni. Þá annað hvort sitt á hvað eða þá nota hvort efnið í sitt hvorn helming hálsmenisins. Einnig er hægt að skreyta efnið með pallíettum, glanssteinum eða hverju sem er til að gera það einstakara.
