Einnar axla kjólar

stilleinoxl.PNG
Efri röð: Ginnifer Goodwin, Maggie Gyllenhaal (í Lanvin), Freida Pinto, Julia Restoin Roitfeld, Jessica Biel (í 3.1 Phillip Lim). Neðri röð: Hayden Panettiere, Gwyneth Paltrow, Mandy Moore (í Preen), Camilla Belle (í Max Azria), Mischa Barton.

Það mætti segja að kjólar með aðeins einum hlýra sé kjólasnið ársins. Stjörnurnar birtast í kjólum sem þessum á rauða dreglinum, ýmist á galakvöldum eða stjörnupartýum, og kjólarnir eru því misfínir. Stjörnurnar hafa notað þetta axlasnið á síðkjólum þegar þær mæta á frumsýningar bíómynda, en aðrar láta sér nægja míníkjóla sem sýna leggina. Eins og sést á stjörnunum hér að ofan eru litlar clutch töskur vænlegt töskuval við kjóla sem þessa.

Ekki þarf að klæðast hálsmeni við kjóla með einum hlýra, eða asymmetríska kjóla eins og þeir kallast allra jafna á enskri tungu, þar sem hálsmálið inniheldur svo flott smáatriði fyrir. Kjólarnir eru kynþokkafullir á minna áberandi hátt heldur en flegin hálsmál. Það er því um að gera að prófa þetta nýja og ferska kjólatrend næst þegar farið er út á lífið, enda hafa verslanir ekki farið varhluta af einnar axla kjólum og er úrvalið því fjölbreytt.