Fyrirsætur á tískuvikum
Efsta röð frá vinstri: Agnete Hegelund, Maryna Linchuk, Natasha Poly, Skye Stracke. Miðröð frá vinstri: Carmen Pedaru, Anja Rubik, Catherine McNeil, Vlada Roslyakova. Neðsta röð frá vinstri: Lily Donaldson, Alana Zimmer, Anna Jagodzinska, Natasha Poly.
Tískuvikur eru háannatími hjá fyrirsætum en þá sjást þær þeysast um tískuborgir á leið á næstu sýningu. Þótt stíll þeirra sé ekki sá frumlegasti þá eru þær engu að síður smart klæddar og hægt að fá góðar hugmyndir að fatasamsetningum. Á tískuvikum undarfarna vikna í New York, Mílanó og París voru allar helstu fyrirsæturnar myndaðar á götum borganna af götustílsljósmyndurum en hér að ofan má aðeins sjá brot af þeim.
Fyrirsætur eru í kjöraðstæðum innan tískuheimsins. Þær fá alla nýjustu tískuna beint í æð og fá að sjá tískulínur áður en allir aðrir þar sem þær mæta iðulega í mátanir áður en sýningar fara fram. Fyrirsætur fá einnig gjafir frá hönnuðum, og svo má ekki gleyma að vinsælustu fyrirsæturnar fá feita launatékka fyrir að ganga sýningarpallana og geta því auðveldlega keypt sér hönnunarvörur.
Það kemur því alls ekki á óvart að fyrirsætur séu oft með einstaklega töff stíl. Satt að segja hafa þær fullkominn líkama sem klæðir nánast allt. Stíll þeirra á tískuvikum er frekar einfaldur því þær eru á þönum út um allt auk þess sem þær þurfa að vera snöggar að afklæðast. Þar sem kalt er í veðri um þessar mundir í Evrópu sem og New York þá er stíllinn einkar vetrarlegur með hlýjum flíkum.
Sá fatnaður sem er vinsælastur meðal fyrirsæta eru mótorhjólaleðurjakkar, blazer jakkar, loðfeldir, dökkar þröngar gallabuxur, leðurleggings auk Chanel taska. Skótauið er oftar en ekki flatbotna en þó eru margar sem taka tískuna fram yfir þægindin og velja háa hæla. Af flatbotna skóm eru mótorhjólastígvél vinsælust ásamt Converse strigaskóm, en af háum hælum eru ökklaskór mest áberandi. Aðrir aukahlutir eru svo kósý treflar og stór taska.
Fyrirsætur eru með látlausan og þægilegan stíl þar sem innblásturinn er meira í grunge tísku og klassískar ,basic‘ flíkur heldur en of mikil kvenlegheit. Stílinn þeirra má taka sér til fyrirmyndar ef um hversdagsklæðnað er að ræða en oft eru fötin þeirra frekar einföld í dökkum litum og svo eru það frekar aukahlutir líkt og klútar, treflar og töskur sem skipta máli.
Myndir: Craig Arend og Eddie Newton.
