Fyrirsætur sem andagift

19651241650097stillmetgala2.PNG
Efri röð: Kate Moss í Marc Jacobs, Hilary Rhoda í Thakoon, Eva Herzigova í Dolce & Gabbana, Miranda Kerr í Jil Sander, Brooklyn Decker í Derek Lam, Iman í Donna Karan, Lara Stone í Alexander Wang, Claudia Schiffer í Versace. Neðri röð: Anna Jagodzinska í Alltazurra, Rachel Zimmermann í Proenza Schouler, Catherine McNeil í Roland Mouret, Isabeli Fontana í Calvin Klein, Sasha Pivovarova í Giambattista Valli, Alek Wek í Emanuel Ungaro, Erin Wasson í Phi.

Í fyrrakvöld átti sér stað Costume Institute Gala í New York og Tískuheimur.is greindi frá stíl helstu Hollywood stjarnanna á viðburðinum í gær. En eins og þema ársins, ‚Fyrirsætan sem andagift‘, gefur til kynna var hlutverk fyrirsæta stærra á kvöldinu en áður. Þar mátti að sjálfsögðu sjá ofurfyrirsætuna Kate Moss, sem var einn af gestgjöfum kvöldsins, en hún var eins og grísk gyðja í gylltum einnar axla kjól úr smiðju Marc Jacobs með túrban í stíl. Túrbanið vakti mikla athygli en það var hannað af hattagerðamanninum Stephen Jones.

Allar fyrirsætur fortíðarinnar voru á sínum stað, allt frá Twiggy til Brooke Shields. Brooke Shields og Cindy Crawford mættu báðar í bláum síðkjólum á meðan Twiggy valdi svarta dragt. Á galanu mátti einnig sjá hina rúmu fertugu Paulina Porizkova sem klæddist appelsínugulum síðkjól. Tyra Banks var fylgt á rauða dregilinn af hönnunardúóinu Badgley Mischka og var kjóllinn hennar þeirra hönnun. Það var svo Michael Kors sem leiddi Lauren Hutton í röndóttum kjól eftir sig sjálfan en Carmen Kass var fulltrúi yngri kynslóðar fyrirsæta fyrir Michael Kors.

Það voru frekar yngri hönnuðir sem fylgdu yngri fyrirsætum á galakvöldið. Doutzen Krous klæddist pallíettukjól frá 3.1 Phillip Lim, Hilary Rhoda og Magdalena Frackowiak klæddust Thakoon, og Lara Stone og Dree Hemingway klæddust Alexander Wang. Margar fyrirsætanna klæddust stuttum kjólum, enda eiga þær algjörlega rétt á því með sína löngu leggi. Fertuga danska ofurfyrirsætan Helena Christensen ákvað að klæðast stuttum bleikum og stelpulegum kjól frá Zac Posen, en hún leit þó ekki út fyrir að vera deginum eldri en tvítug.

Þar sem fyrirsætur eru umkringdar tískunni dagsdaglega voru þær frekar frakkari í fatavali en stjörnurnar. Silfraður Balmain míníkjóll, gulgrænn Calvin Klein flauelkjóll, kjóll alsettur kögri frá Jil Sander og skósíð fjaðrakápa eru einungis nokkur áhugaverð lúkk sem vinsælustu fyrirsætur nútímans pósuðu í á rauða dreglinum. Rokkaða fyrirsætan Erin Wasson tók þó töffaraskapinn á hærra plan með leðurbuxum með rennilás niður leggina. Það var allavega nóg af fjölbreyttum tískuinnblæstri og vel klæddum konum á Costume Institute Galanu þetta árið.