Gallajakkar í stað leðurjakka í sumar
Efri röð: Miranda Kerr, Jessica Simpson, Pixie Geldof, Rihanna, Nicole Richie. Neðri röð: Chloe Sevigny, sumarlína Isabel Marant, Cecile Cassel, Nicole Richie, Diane Kruger.
Gallajakkar eru þægileg yfirhöfn á sumrin, enda passa þeir vel við ýmsar sumarflíkur. Stjörnurnar hafa verið duglegar að klæðast gallajökkum upp á síðkastið við mismunandi tilefni og eru samsetningarnar ýmis konar. Munstraðir maxikjólar við stutta gallajakka eru vinsæl blanda, enda þægilegt að skella gallajakka yfir kjólinn þegar kvölda tekur. Pils sem eru há í mittið við bera leggi hafa einnig verið paraðir við jakkann af London píunni Pixie Geldof og amerísku leikkonunni Minka Kelly.
Nokkrir hönnuðir sýndu gallajakka í línum sínum fyrir sumarið. Má þar helst nefna hina frönsku Isabel Marant sem er afar vinsæl í Frakklandi og víðar. Öðruvísi útgáfur af gallajökkum sáust einnig hjá Balmain og Alexander Wang. Tímaritin hafa auk þess stokkið á trendið því í maí hefti franska Vogue er fyrirsætan Daria Werbowy á forsíðunni og klæðist hún vintage Levi‘s gallajakka. Þegar Carine Roitfeld, ritstjórinn, ákveður að setja eitthvað á forsíðuna er það víst að það sé samkvæmt nýjustu tísku. Daria er einnig í myndasyrpu inni í blaðinu klædd í ýmsar útgáfur af gallajökkum og gallavestum.
Bæði Nicole Richie og Rihanna hafa sést oftar en einu sinni í gallajökkum upp á síðkastið. Nicole hefur parað sinn við ýmsar flíkur, meðal annars munstraðan maxikjól, þröngan fínan kjól og stuttan kjól við sokkabuxur. Þar sem stjörnurnar eru vanar að sýna sig ekki í einni flík oftar en einu sinni verður að segjast að gallajakkar eru fjölbreytt flík því þeir henta við svo margt. Rihanna hefur klæðst sínum dökka gallajakka við víðar buxur háar í mittið, og einlitan maxikjól. Í bæði skiptin var hún stödd á flugvelli og finnst henni því greinilega þægilegt að ferðast í gallajakka.
Gallajakkar eru miklu meira við hæfi á sumrin heldur en leðurjakkar sem hafa verið svo vinsælir undanfarið. Þar sem gallajakkinn er svolítið töffaralegur er hann hentugur við fína, stutta sumarkjóla þar sem hann lætur þá vera minna fína. Gallajakkinn er flottastur svolítið úr sér genginn og snjáður. Þeir eru flestir úr venjulegu gallaefni en geta þó verið flottir í mjög ljósu gallaefni líkt og hin þýska leikkona Diane Kruger sýndi nýlega. Best er að hafa þá í styttra lagi og að ermarnar séu í kvart sídd. Ef ermarnar eru langar er tilvalið að bretta aðeins upp á þær fyrir flottara yfirbragð.
