Glitrandi stjörnur
Til vinstri: Becki Newton. Efri röð: Chloe Sevigny, Gwyneth Paltrow, Mischa Barton. Neðri röð: Kate Hudson, Whitney Port, Jennifer Connelly.
Oft má sjá flottustu hönnunarflíkur hverrar árstíðar á stjörnunum sem eru vanalega með puttann á púlsinum hvað nýjustu trendin varðar. Undanfarnar vikur hafa margar stjörnur sést í ýmsum pallíettuflíkum, allt frá eðalfínum galakjólum til þægilegri pallíettujakka. Þó að nánast ógerningur sé að klæðast pallíettum á hversdagslegan hátt, þá eru pallíettur komnar í svolítið nýjan og ferskari búning en áður.
Í stað þess að nota pallíettur á kjóla sást til dæmis Ugly Betty leikkonan Becki Newton í dökkgrænum pallíettusamfesting frá Yves Saint Laurent við skó frá sama merki. Buxnasamfestingurinn er hlýralaus sem gerir hann fínni og buxnaskálmarnar eru víðar í kvartsídd, sem lætur samfestinginn virka meira eins og kjól. Það verður að segjast að það hefði ekki hver sem er getað lúkkað vel í pallíettusamfesting en Newton tekst það þó ágætlega.
Grænn virðist vera vinsæll pallíettulitur en Jennifer Connelly klæddist grænum pallíettukjól frá Balmain við frumsýningu 'He‘s Just Not That Into You‘ í byrjun febrúar. Kjóllinn er stuttur og þröngur með stórum öxlum sem eru mikið trend í augnablikinu, sérstaklega frá Balmain. Jennifer er ekki hrædd við að klæðast djörfum flíkum frá heitustu hönnuðunum og sýndi hún það svo sannarlega þegar hún klæddist þessum kjól.
Navy blár slær öðrum litum við þegar kemur að pallíettukjólum en fyrir utan Mischu Barton hafa bæði Alexa Chung og Rachel Weisz sést í mismunandi útgáfu af þeim. Mischa mætti hins vegar í sínum á tískusýningu Elie Saab á hátískuvikunni í París í lok janúar. Kjóllinn er mjög glæsilegur, en hann skartar einungis einum hlýra sem er afar vinsælt um þessar mundir. Pallíetturnar eru af tveimur tegundum og mynda munstur sem kemur skemmtilega út.
Kate Hudson ákvað, líkt og Mischa, að velja munstraðan pallíettukjól, en hún fór þá leið að hafa hann í mismunandi litum með bæði grænum, hvítum og gylltum pallíettum. Kjóllinn kemur frá Emilio Pucci, en Kate klæddist honum við svartar sokkabuxur í þykkari kantinum og svörtum háum hælum þannig að leggirnir virtust lengri. Það var sniðugt hjá henni að leyfa kjólnum að njóta sín með því að vera í svörtu að neðan, enda um að ræða virkilega flottan kjól sem á athygli skilið.
Sokkabuxur virðast vera vinsælar við pallíettukjóla, en bæði Chloe Sevigny og Gwyneth Paltrow fóru þá leið að klæðast þeim við sína kjóla. Chloe er í framtíðarlegum Balenciaga kjól við skó frá sama merki, en sokkabuxurnar eru samfastar skónum. Liturinn á sokkabuxum er í blágráum og hentar því vel við glansið í kjólnum sem er einhverskonar samblanda af bláum, grænum og gráum. Kjóll Gwyneth er aftur á móti gylltur að ofan og silfraður að neðan og því einkar flott að klæðast silfursokkabuxum og -skóm sem lengingu á kjólnum.
Að lokum er það svo raunveruleikastjarnan Whitney Port sem skartar forláta gylltum pallíettujakka. Hún mætti í jakkanum í veislu í New York haldna af Diane von Furstenberg en Whitney er einmitt starfsmaður hjá von Furstenberg og kemur því ekki á óvart að jakkinn sé þaðan. Við jakkann hélt Whitney hlutunum einföldum en hún paraði hann við svartar þröngar gallabuxur og ballerínuskó. Hún sýndi þar með eitt aðalatriðið sem hafa ber í huga þegar fást er með pallíettur – að leyfa flíkinni með glitrinu og glamúrnum að njóta sín sem best.
