Götustíll Mílanó

56261237568550streetstylemln.PNG

Líkt og í New York, var fullt af götustílsljósmyndurum á ferli á tískuvikunni í Mílanó til að taka myndir af smart tískufólki. Á vinsælustu götustílsbloggunum mátti sjá myndir af allt frá óþekktum tískuaðdáendum, sem voru heppnir að komast inn á sýningar, til valdamesta fólksins í tískubransanum líkt og Carine Roitfeld, ritstjóra franska Vogue og stöllu hennar Önnu Wintour, ristjóra ameríska Vogue. Svo er það fólkið þar á milli, starfsmenn tískutímarita, innkaupastjórar tískuverslana og fleiri sem voru í vinnunni á sýningunum – ekki amalegt það.

Tískufólkið hefur þau forréttindi að geta auðveldlega orðið sér úti um hönnunarflíkur, allavega stendur það í betri stöðu en almenningur. Það eru þó ekki allir í lykilstöðum innan tískuheimsins og því er algengt að starfsmenn tískutímarita séu ekki endilega þeir hæstlaunuðu ef þeir eru ekki í yfir- eða ritstjórastöðum. Þess vegna er alltaf áhugavert að sjá þær dömur sem klæða sig í blöndu af dýrri hönnun og svo ódýrari merkjum. Oft eru það skórnir sem eru í dýrari kantinum þar sem þeir eru mikil tískuvara enda jafnast ekkert á við heitustu skó hverrar árstíðar.

Ef tekið er dæmi um hvernig hægt er að blanda ódýru og dýru saman, þá eru skvísurnar í neðri röð fyrir miðju ágætt sýnishorn. Sú til vinstri er í blazerjakka úr H&M sem hún parar við leðurbuxur og háhæla platform skó í glansleðri. Jakkinn er í stærri kantinum og með stórum öxlum en það er bæði vinsælt í jökkum núna. Jakkinn virðist ekki vera ódýr af því honum er klæðst við ríkulegar svartar áferðir og lúkkinu er í heild haldið einföldu. Sú til hægri er einnig í blazer jakka, en þó styttri gerð. Jakkann parar hún við stuttar ökklabuxur til að skórnir njóti sín sem best, en þeir eru með loðnum dúskum og eru algjörlega aðalatriðið við klæðnaðinn.

Svo eru það ritstjórarnir, sem eru í lykilstöðunum og þurfa ekki að klæðast ódýrari merkjum með, eins og Anna Dello Russo , tískuritstjóri japanska Vogue, sýnir í neðri röð til vinstri. Hún klæðist stuttum, langerma míníkjól frá Balmain. Hann er þannig séð frekar einfaldur í sniði að undanskildum öxlunum. Þær eru stórar og afmarkaðar, en stórar axlir sáust mjög oft á tískufólkinu á tískuvikunum. Balmain línan innihélt mikið af áberandi öxlum og því ekki skrýtið að það hafi verið aðalmerkið til að klæðast. Sami kjóll og Dello Russo er í hér, klæddist Mary-Kate Olsen einnig á verðlaunahátíð í síðasta mánuði. Það sem er svo flott við hann er silfurkaðallinn í kringum hálsmálið og á öxlunum, hann gerir mikið til að draga augun að öxlunum.

Litir sáust þónokkuð á götustílnum í Mílanó og líkt og í New York var það alltaf gert á þann hátt að liturinn stóð virkilega upp úr. Þannig var ein flík eða aukahlutur í sterkum lit en restin svo svört eða í hlutlausum litum. Til dæmis eru rauðu skórnir, í efri röð til vinstri, óaðfinnanlega töff á móti svarta litnum. Hún klæðist peysu í yfirstærð úr loðnu efni sem hefði geta komið púkalega út, en þar sem neðri hlutanum er haldið aðsniðnum með aðþröngu mínípilsi í teygjuefni, þá virkar peysan einfaldlega fersk enda flott áferð á henni. Annað smart dæmi um líflegan lit er blái blazer jakkinn, efri röð fyrir miðju, sem er paraður við vintage stuttermabol og rifnar, gráar gallabuxur.

Rifnar gallabuxur eru nefnilega að koma sterkar inn, bæði dökkar – svartar og gráar – sem og í þvegnu bláu gallaefni í karlmannssniði. Þessar dökku eru oftar þröngar niður í rokkarasniði og með nokkum rifum um lærin eða hnén, en þær bláu eru snjáðari með yfir allt en þó einnig með rifum. Oftast er brett upp faldinum á þessum klassísku bláu þar sem karlasniðið gerir þær frekar víðar og því kvenlegra að láta sjást í ökklann. Líkt og sú í efri röð til hægri, þá er tilvalið að klæðast killer hælum við buxurnar, en hún er í háhæla Tribute söndulum, með T-laga bandi og upphækkun að framan, frá Yves Saint Laurent sem hafa verið geysivinsælir meðal stjarnanna.

Að lokum er það svo síðasta lúkkið, neðri röð til hægri, en unga konan þar sýnir frábært dæmi um loðnu vestin sem hver tískudaman hefur klæðst á eftir annarri undanfarið. Þau hafa hingað til að mestu verið í svörtu, en kremaður er mildari litur og kom sérstakleg vel út að vera með tösku í sama lit, en hún er úr sumarlínu Marni frá síðasta sumri. Það sem gerði vestið svo flott var mjóa, gyllta pallíettusteinabeltið en það dró mittið inn enda efnið loðið og fyrirferðamikið. Hún klæðist svo langerma bómullarbol og leggings við sem er góður svartur grunnur fyrir flotta loðvestið.

Myndir: Eddie Newton og Scott Schuman.