Götustíll New York borgar

89851236936555streetstyleny.PNG

Á tískuvikunni í New York var urmull af ljósmyndurum sem farið er að kalla tísku paparazza – þeir þeysast á milli staða til þess að taka myndir af tískuliðinu á leiðinni í eða úr sýningum. Einnig smella þeir myndum af smart New York borgurum og því hægt að fá góðar hugmyndir af fatasamsetningum og heitustu trendunum. Vinsælasti götustílsljósmyndarinn er án efa Scott Schuman frá The Sartorialist en flestar myndirnar fyrir ofan eru teknar af honum.

Í New York nú í febrúar var fullt af flottum götustíl og allskyns hlutir í gangi. Mikið var um jakka og kápur enda ennþá kalt veður í New York. Klútar og léttir treflar voru sömuleiðis áberandi. Buxur voru voða vinsælar, bæði ökklasíðar sem og síðar og útvíðar (efri röð fyrir miðju), en þær voru oftast frekar víðar í fínum efnum. Loðfeldir voru alveg málið og sáust loðkápur og stuttir loðjakkar (efri röð til vinstri) í brúnyrjóttu þónokkuð. Svalar tískupíur mættu einnig á tískusýningarnar í svörtum loðvestum (neðri röð fyrir miðju)sem voru ekki endilega úr feld heldur loðnu efni og var flottast þegar þær voru svo í leðurjakka undir.

Miroslava Mikheeva-Duma (efri röð til hægri) er viðburðarfulltrúi hjá Harper‘s Bazaar tímaritinu í Rússlandi en hún var mjög oft mynduð af götustílsljósmyndurum. Áhugavert var að sjá hversu fjölbreyttan og ólíkan stíl hún er með. Hún sást í dömulegri samsetningu eins og þessu kremaða, kvenlega pilsi og loðfeld; hún var klassísk í svartri kápu og svörtum rússkinnshælum; rokkuð í rifnum gallastuttbuxum og mótorhjólastígvélum með göddum; og svo sást hún einn daginn í hnepptum gallakjól og leðurjakka. Allt var fullkomlega stíliserað með nóg af attitjúdi.

Susie (neðri röð til vinstri), frá blogginu Style Bubble, lét sig ekki vanta á tískuvikuna en hún er þekkt fyrir spes og nýstárlegan stíl. Hún er með frekar framúrstefnulegar tískupælingar og blandar oft mjög ólíkum flíkum saman. Að þessu sinni var hún í þónokkuð klæðilegum flíkum kannski fyrir utan gulu buxurnar, sem þó gáfu extra lit og gerðu lúkkið áhugavert. Við neon gulu buxurnar klæddist hún svo plastjakka, grófprjónuðum trefil í yfirstærð og háhæla þrílita skóm sem eru að öllum líkindum frá Marni.

Það sést best á götunni hvernig tískan þróast, því þótt allt sé leyft á tískupöllunum þá gengur ekki allt í ‘raunveruleikanum‘. Í New York var hægt að sjá ýmis trend eins og steinþvegnar gallabuxur, blúndutopp og köflóttan jakka allt í sama pakkanum (neðri röð til hægri). Fyrrnefndur klæðnaður gæti eflaust hljómað of trendí en það er hægt að klæða sig í fullt af trendum en samt gera það sitt eigið. Samsetninginn og hugmyndaflugið skiptir öllu máli.