Götustíll Parísar

49411238157140streetstyleprs.PNG

Það var úr miklu að velja þegar kom að götustílnum á tískuvikunni í París. Þar sást parísartíska eins og hún gerist best. Allt franska tískufólkið, þar með talið Vogue Paris teymið, var augljóslega á staðnum en einnig var alþjóðlegur bragur á ferð þar sem allt helsta tískufólk Evrópu, Bandaríkjanna og Asíu lét sig ekki vanta.

Helstu trendin sem eru í gangi núna voru áberandi í París en þar má nefna leður, ökklabuxur, rifnar gallabuxur og stórar axlir. Minna var um loðfeldi eins og á hinum tískuvikunum, líklegast af því að veðurfarið var orðið heitara í París, en í staðinn sáust töff kápur í ullarefnum. Blazer jakkar voru sömuleiðis vinsælir í svolítilli yfirstærð og var oft notað belti í mittið.

En hvað samsetningarnar að ofan varðar, efst til vinstri má sjá töff útgáfu af pallíettuleggings við framandi Prada hæla og hvítan jakka í Chanel-stíl. Þar við hliðina á er ótrúlega flott leið við að nota liti. Skærir og sterkir litir harmonera mjög vel við leður eins og sést á þessari stúlku sem er í leðurjakka með ýktum öxlum, leðurhönskum og Yves Saint Laurent ökklahælum í glansleðri við litríkan kjól.

Þótt pallíettur og leður séu svolítið á glamúrhliðinni var það þó ekki eingöngu einkennandi. Klassísk snið og látlausir litir voru einnig við lýði. Litirnir eru fallegir saman, fölbleikur og grár (efst, önnur frá hægri) – og drapplitaðar víðar ökklabuxur við svart (efst til hægri). Þótt lúkkið sé ekki mjög áhættusamt er það samt sem áður klassískt með broti af því sem er í gangi núna.

Útí aðeins meiri tískubylgju, en Taylor Tomasi, aukahlutastjóri Teen Vogue, klæðist hér rifnum gallabuxum, sem eru vinsælar um þessar mundir. Hún lét hælana víkja og valdi frekar mótorhjólastígvél sem passa líka einkar vel tjásulegar gallabuxurnar. Til að klára töffærasamsetninguna var hún með úlnliðinn fullan af silfurarmböndum en bætti svo smá klassísku touchi við með Chanel tösku.

Géraldine Saglio er aðstoðarstílisti hjá franska Vogue. Að ofan (neðri röð, önnur frá vinstri) klæðist hún öllu svörtu, en sýnir smá munstur í hermannastuttbuxum. Hermannamunstur hefur lengi verið talið allt annað en smekklegt, en einhvern veginn kemst hún upp með það. Það sakar allavega ekki að bretta upp á faldinn og vera með belti við auk þess sem hún heldur lúkkinu chic með háum hælum, sokkabuxum og blazer jakka.

Eins mikla andstæðu af skoðunum hlébarðamunstrið hefur fengið í gegnum tíðina, þá er ekki hægt að neita því að skvísurnar neðst til hægri fara ekki illa með munstrið. Sú til vinstri er í peysu frá Christopher Kane, en hann fékk innblástur frá The Flinstones við gerð þessa munsturs úr sumarlínu sinni. Þarna er hlébarðamunstrið vissulega sett í nýjan búning sem er bara nokkuð flottur.

Hlébarðakápur eru taldar klassík af sumum en öðrum finnst munstrið einfaldlega ljótt. Kate Moss tilheyrir þó fyrri hópnum þar sem hún hefur oft sést í hlébarðakápujakkanum sínum í gegum tíðina. Annað tískukvendi, Emmanuelle Alt, tískustjóri franska Vogue (neðst til hægri), er greinilega með Moss í liði en hún sást á tískuvikunni í París í kápu með munstrinu við klofsíðar harem buxur og rússkinsstígvél. Og leit hún óaðfinnanlega út eins og vanalega.

Myndir: Eddie Newton, Garance Doré, Scott Schuman.