Hálfsmánaðar tískumaraþon Siennu Miller

stillmiller.PNG

Sienna Miller hefur tekið rauða dregilinn með trompi undanfarnar vikur við kynningu á nýjustu mynd sinni G.I.  Joe: The Rise of Cobra þar sem hún leikur barónessuna. Þó að leikkonan hafi alltaf þótt töff í tauinum tók hún stíl sinn upp á næsta stig fyrir kynningarherferðina og klæddist djörfum samsetningum samkvæmt nýjustu tískunni. Miller hefur sagt bless við bóhemstílinn og tekið upp örlítið fágaðri, og stundum rokkaðri, stíl. Takið eftir fjölbreyttum hárgreiðslum og förðunarvali eftir klæðnuðum, eins og t.d. tagl og dökk augnförðun við glansdragtina frá Gucci, og glamúrkrullur og rauður varalitur við brúnlitaða síðkjólinn.

Kynningarherferðin var mikil heimsreisa, hún hófst í Sydney, Ástralíu og flökkuðu leikararnir til Evrópu og Asíu þangað til að reisan endaði loks í Los Angeles. Á tímabilinu klæddist Sienna óteljandi flíkum og skóm frá merkjum á borð við Gucci, Diane von Furstenberg, Chloé, Loewe og Isabel Marant. Hún lét aðeins sjá sig einu sinni í hverri flík (eins og stórstjörnum sæmir) og einn daginn klæddist hún hvorki meira né minna en fimm klæðnuðum fyrir mismunandi viðtalsþætti og viðburði. Miller slappar nú af á lúxus sumarleyfisstað stjarnanna, Ibiza á Spáni, eftir alla erfiðisvinnuna við kynningu myndarinnar.