Hinar klassísku sjóararendur
Efri röð: Audrey Tautou sem Coco í Coco Before Chanel, Balmain haust '09, Michael Kors sumar '09, Sonia Rykiel sumar '09. Neðri röð: Kate Moss, Alexa Chung, Claudia Schiffer, Sienna Miller, Lindsay Lohan, Kirsten Dunst.
Áhrif Coco Chanel lifa enn þann dag í dag. Eitt af þeim er röndótti bolurinn sem er fyrir löngu orðinn klassík. Hann hefur rækilega fest sig í sessi líkt og litli svarti kjóllinn, sem kemur einnig úr smiðju Coco. Hönnuðir leita reglulega til randa bolsins, sem eru mjóar í hvítu og navy bláu. Rendurnar eru í sjóarastíl en Coco var innblásin af frönsku sjóliðunum og ákvað að hanna sína eigin útgáfu af efri hluta búnings þeirra. Ein af kynningarljósmyndum nýrrar myndar um Coco, Coco Before Chanel, er einmitt af Audrey Tautou í goðsagnakennda bolnum.
Víða hefur röndótti bolurinn verið nefndur Breton sem skírskotun í fána Bretagneskagans í Frakklandi sem ber rendur líkt og bolurinn. Allt frá Kate Moss til Gwyneth Paltrow hafa klæðst röndótta bolnum. Tískuíkon fortíðar héldu einnig upp á hann, en þar má nefna Edie Sedgwick og Brigitte Bardot. Bolnum hefur því verið klæðst á ýmsa vegu í gegnum tíðina, og birst í mismunandi útgáfum, en er án efa flottastur eins og hann birtist fyrst. Sá er örlítið víður frekar en þröngur, og er smart að klæðast honum við blazer jakka og gallabuxur að vetri til, eða gallastuttbuxur á sumrin.
Í sumarleyfislínu Chanel næsta árs eru nokkrir sjóarainnblásnir klæðnaðir með rendurnar í fararbroddi. Chanel kom nýlega með nýja útgáfu af röndótta bolnum á markað með Chanel lógóinu framan á og seldist hann upp á augabragði. Claudia Schiffer, Mischa Barton og Sienna Miller hafa allar sést í bolnum á síðustu mánuðum. Þær sem geta þó ekki orðið sér úti um hinn eina sanna Chanel bol ættu samt sem áður að næla sér í eitt stykki af hinni klassísku útgáfu ef þið eigið hann ekki nú þegar.
