Hver er: Byrdie Bell

51931239807689stillbyrdiebell.PNG

Byrdie Bell er ekki enn orðin ofurþekkt nafn, en hún er upprennandi leikkona sem hefur nú þegar fengið mikla athygli, ekki einungis út á leiklistarhæfileika, heldur fyrir flottan stíl. Byrdie er 24 ára gömul og ekta New York ‘socialite‘, komin af ríku fólki en pabbi hennar er metsölurithöfundur og fyrrverandi framkvæmdastjóri. Hún er einnig tengd konungsfólki Noregs í gegnum fjölskyldubönd móður sinnar.

Þótt foreldrarnir séu efnaðir og galakvöld og lúxusdansleikir séu ekki óalgengir í hennar lífi, ber hún ekki yfir sér ríkulegt og snobbað yfirbragð. Hún tilheyrir elítu New York borgar og tók fyrst þátt í samkvæmislífi hinnar ríku á dansleik á Waldorf-Astoria 18 ára gömul. Eflaust finnst mörgum bakgrunnur hennar koma beint úr sjónvarpsþættinum Gossip Girl sem er fylltur ríkum unglingum í efri austurhluta New York.

Stíll Byrdie er þó allt öðruvísi en saga hennar segir til um. Hann er fullur af litum og töff sniðum en er samt sem áður glæsilegur þar sem aukahlutirnir eins og skór, töskur og belti skipa stóran sess. Hún virðist ekki heltekin af því að klæðast hverri flík einungis einu sinni og sést oft í uppáhaldsflíkunum sínum. Merkið virðist heldur ekki alltaf skipta máli, því þó hún eigi alveg örugglega nóg af peningum setur hún það ekki fyrir sig að klæðast ódýru inná milli.

Það þýðir þó ekki að hún eigi ekki kjóla frá Versace og Dolce & Gabbana. Hún er mikið fyrir tísku og hönnuði en hennar uppáhalds eru Rick Owens, Yigal Azrouël, Dries Van Noten og Ann Demeulemeester. Henni finnst tíska vera form af tjáningu líkt og leiklistin. Hún segist frekar vilja klæðast einhverju áhættusömu og listrænt ögrandi heldur en að reyna að vera sæt. Þótt hún taki áhættur er hún samt fáguð á skemmtilegan hátt.

Byrdie, sem er einnig fyrirsæta og hefur verið viðriðin gerð heimildarmynda, gengur í öllu frá rifnum gallabuxum til galakjóla. Hún veit hvað hentar hverju tilefni og kann að dressa sig upp og niður eftir því hvert hún er að fara. Hana er hægt að sjá á ýmsum viðburðum í New York, allt frá kvikmyndafrumsýningum til stórdansleikja. Alltaf er hún með stórt bros á andlitinu og í fatnaði sem lýsir persónuleika hennar fullkomlega.