Hvítir kjólar eins og auður strigi
Chloe Sevigny, Michelle Williams, Anne Hathaway, Jennifer Lopez, Kim Kardashian.
Hvítur er litur hreinleikans og sakleysisins, en það á ekki endilega við hvíta litinn á kjólum sem stjörnurnar hafa klæðst undanfarið. Liturinn fær á sig nýja mynd þar sem sniðin eru einstök en þar koma við sögu dreiperingar líkt og á kjólnum úr sumarlínu Alexander Wang sem Michelle Williams klæddist í lok síðasta árs, háar klaufir sem Chloé Sevigny masterar og ein öxl sýnd a la Anne Hathaway. Hlýralaust virðast vera vinsælt en síddin virðist þó vera óháð sérstakri reglu. Kjólarnir eru allt frá því að vera í mínísídd fyrir þá sem vilja sína leggina í það að vera fyrir neðan hné, en þá er líka möst að vera í háum hælum við.
Hvítu kjólarnir eru kynþokkafullir og góður arftaki litla svarta kjólsins í sumar enda lýsa þeir vel upp á fataskápinn án þess að vera yfirgnæfandi. Meðal hönnuða sem sýndu hvíta kjóla í sumarsýningum sínum eru Christophe Decarnin fyrir Balmain, Giles Deacon og Justin Thornton og Thea Bregazzi fyrir Preen. Miðað við kjólana á sýningarpöllunum og þá sem stjörnurnar klæðast eru þeir hentugastir við fínni tilefni. Þeir sjást þó líka í þægilegum jersey efnum sem eru hversdagslegri en þeir úr stífari efnum. Svartar sokkabuxur og svartir ökklahælar eru einnig góð leið til að dressa hvítan kjól niður auk þess sem sú samsetning hentar vel í haust þegar kólna fer í veðri.
Best er að para svarta aukahluti við hvíta kjóla fyrir fágað og smart svarthvítt lúkk. Þannig er hægt að fara að ráðum Kim Kardashian og setja mjótt svart belti í mittið, en Jessica Alba sást með eins belti á sínum hvíta kjól fyrir stuttu. Annað hvort er hægt að taka svarthvíta lúkkið alla leið og velja svarta clutch tösku og svarta hæla, en þó er tilvalið að poppa kjólinn upp með því að velja rauða tösku eða skærlita skó fyrir smá djarfleika. Það besta við hvíta kjólinn er einmitt hversu einfaldur hann er, hann virkar eins og auður strigi og því einfalt að bæta við litum með aukahlutum.
