Joggingbuxur verða tískuflík

72271245174719stillgdore.PNG
Sumarlína Isabel Marant 2009; mynd tekin af Garance Doré; Garance í joggingstuttbuxunum sínum; Rumi Neely í klipptum joggingbuxum.

Í kreppu þarf maður að vera svolítið hugmyndaríkur til að breyta og bæta föt sem fyrir eru til í skápnum svo þau þjóni nýjum tilgangi. Endrum og sinnum sjást góðar hugmyndir á sýningarpöllum en franski hönnuðurinn Isabel Marant hefur verið góður innblástur fyrir þær sem vilja breyta fötum eða skóm sem allir eiga inn í skáp, eða hugsa sumar flíkur upp á nýtt. Það þarf nefnilega ekki alltaf að breyta heldur getur samsetningin skipt höfuðmáli. Hér að ofan má sjá góða hugmynd að nýrri útfærslu joggingbuxna í boði hinnar frönsku Garance Doré.

Isabel Marant sýndi gráar joggingbuxur í sumarlínu sinni. Joggingbuxur geta seint talist smekklegar en samsetning Marant var þó ótrúlega flott þó einföld hafi verið. Í lok maí myndaði Garance Doré konu í París í joggingbuxum frá Isabel Marant við hvítan bol og blazer jakka – ekki flókið en vakti mikla lukku. Fyrir stuttu sagði Garance frá því að hún hefði klippt joggingbuxurnar sínar fyrir sumarið svo úr urðu joggingstuttbuxur en málið er að bretta örlítið upp á faldinn. Þær ganga þó einungis upp við háa hæla svo þær virki ekki tuskulegar.

Tískubloggarinn Rumi Neely, sem hefur verið mikill tískufrömuður undanfarið og þekkt fyrir hráan og töff stíl, sást fyrst í joggingstuttbuxum í febrúar. Ótrúlegt en satt koma hennar buxur frá hjólabrettamerkinu RVCA, en þær voru upphaflega í kvartsídd en Rumi klippti þær og bretti upp á faldinn svo úr urðu flottar stuttbuxur. Fyrir utan Isabel Marant sýndi Alexander Wang einnig joggingbuxur í sumarlínu sinni. "Bæði Wang og Isabel Marant eiga þakkir skilið fyrir að kynna hugmyndina um að æfingaföt geti verið viðeigandi klæðnaður utan veggja heimilisins...nokkuð þægilegt," segir Rumi.

Auðvelt er að líkja eftir þessari hugmynd, það eina sem til þarf eru gráar joggingbuxur og skæri. Takið mið af samsetningunum að ofan fyrir ráð um hverju á að klæðast við joggingstuttbuxur. Myndirnar að ofan sýna á hversu auðveldan hátt er hægt að breyta flík sem hefur ekki hefur þótt ásættanlegt að klæðast á almannafæri, í flotta og þægilega tískuflík. Á næstu vikum mun Tískuheimur.is birta fleiri hugmyndir að ódýrum útfærslum á flíkum og aukahlutum - ekki missa af því!


Garance Doré er franskur götustílsbloggari sem heldur úti síðunni www.garancedore.fr. Rumi Neely heldur úti tískublogginu www.fashiontoast.com.