Kjólarnir á kvikmyndahátíðinni í Cannes
Efri röð: Carine Roitfeld, Eva Herzigova, Kerry Washington, Sharon Stone, Lily Cole. Neðri röð: Eva Herzigova, Peaches Geldof, Kylie Minogue, Claudia Schiffer, Natasha Poly.
Það var sannkallað stjörnufans í Cannes í Frakklandi þar sem nýafstaðin kvikmyndahátíð var haldin. Hátíðin stóð yfir í tæpar tvær vikur en síðasti dagurinn var á sunnudaginn. Lokakvikmynd hátíðarinnar er náskyld tísku en það er myndin Coco Chanel & Igor Stravinsky sem fjallar um ástarævintýri Chanel og Stravinsky í París árið 1920. Franska leikkonan Anna Mouglalis leikur sjálfa Coco í myndinni og var hún að sjálfsögðu mætt á hátíðina. Það sem er gaman við Cannes er fjölbreytt mannlífið en þar voru eðalleikkonur og leikarar frá Frakklandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi að ógleymdri Zhang Ziyi frá Kína.
Það var mikið um góðar myndir í ár og því létu allar helstu Hollywood stjörnurnar sjá sig, hvort sem það var á rauða dreglinum, í samkvæmum eða á snekkjum. Brad Pitt og Diane Kruger kynntu myndina Inglourious Basterds og Penelope Cruz kynnti sína mynd, Broken Embraces. Fyrirsætan Lily Cole gekk rauða dregilinn í fyrsta sinn sem leikkona en hún lék í myndinni The Imaginarium of Doctor Parnassus. Mikið fór einnig fyrir ýmsum ungum stjörnum á borð við Paris Hilton, Hayden Panettiere og Peaches Geldof.
Eins og við er að búast var mikið um fínar veislur í Cannes en ein af þeim flottustu var amfAR góðgerðakvöldið. Þar var rauði dregillinn skrautlegur með ýmsum stjörnum í rándýrum hönnunarkjólum. Þar voru mættar leikkonur, fyrirsætur og meira að segja tískuhönnuðir. Eva Green og Marion Cotillard mættu í Dior kjólum, Claudia Schiffer klæddist Dolce & Gabbana, Lily Cole og Carine Roitfeld voru í kjólum frá Emilio Pucci, andagiftið hans Karl Lagerfeld, Diane Kruger, var að sjálfsögðu í Chanel og hún Donatella Versace mætti í bláum Versace kjól.
Önnur veisla sem var einnig á allra vörum var sú sem hönnunardúóið Dolce & Gabbana héldu um síðustu helgi. Þar var allt tískufólkið og fyrirsæturnar mættar. Carine Roitfeld, ritstjóri franska Vogue, og rokkarapían Alice Dellal völdu báðar hlébarðamunstraða kjóla. Aðrar London píur sem mættu í partíið voru systurnar Peaches og Pixie Geldof en þær þrjár, Geldof systur og Dellal, voru allar í Dolce & Gabbana kjólum eins og margir aðrir gestir. Meðal annarra gesta voru fyrirsæturnar Eva Herzigova og Claudia Schiffer – báðar í svörtu.
