Kjólastíllinn á CFDA verðlaununum
Efri röð: Ashley Olsen, Behati Prinsloo, Diane Kruger, Blake Lively, Olivia Palermo, Rachel Roy. Neðri röð: Kerry Washington, Arlenis Sosa, Kirsten Dunst, Lake Bell, Dree Hemingway, Daphne Guinness.
CFDA verðlaunin sem haldin voru í fyrrakvöld innihélt mikinn glamúr þegar tískufólkið og heitustu stjörnur dagsins í dag flugu til New York til að vera viðstödd verðlaunaafhendinguna sem er jafnan talin Óskarsverðlaunahátíð tískuheimsins. Tilnefndir hönnuðir klæddu sínar uppáhalds stjörnur og fyrirsætur í eigin hönnun. Frægir amerískir hönnuðir eins og Michael Kors, Vera Wang og Donna Karan þar einnig mættir til að líta verðlaunahafana augum. Ekki má svo gleyma tveimur áhrifakonum í tískunni, þeim Önnu Wintour, sem klæddist Carolina Herrera, og formanni CFDA ráðsins, Diane von Furstenberg.
Misjafnt var hvort stjörnurnar drógu síðkjólana fram eða kusu heldur míníkjóla en það voru þó ákveðnar stefnur í kjólavalinu. Sterkir litir sáust meðal annars á Ashley Olsen í rauðappelsínugulum síðkjól og Blake Lively sem klæddist skærbleikum kjól frá Michael Kors. Rauður var þó almennt vinsælasti liturinn með fyrirsætuna Behati Prinsloo í kjól úr smiðju Yigal Azrouel og kynnar kvöldsins, Diane Kruger og Tracy Ullman voru báðar í rauðu, Kruger í Jason Wu og Ullman í Doo.Ri.
Ef farið er í andstöðu skærra lita – drapplitaðan og kampavínslitaðan ásamt hvítum og kremuðum – þá voru þeir ljósu óvenju vinsælir. Hönnuðirnir Erin Fetherston og Rachel Roy klæddust hvítum kjólum úr eigin merki, en fyrirsæturnar Anja Rubik og Lydia Hearst voru einnig fágaðar í hvítu. Þær dömur sem ákváðu að veðja á kampavínslitinn voru meðal annars stílistinn Rachel Zoe (í Louis Vuitton), sjónvarpskynnirinn Padma Lakshmi (í J.Mendel) og sósíalístan Olivia Palermo.
Að litum undanskyldum voru ákveðin axlasmáatriði mikið á sjónarsviðinu . Þar komu einnar axla kjólar mikið til greina og má eiginlega segja að önnur hver kona hafi verið í kjól með aðeins einum hlýra sem er án efa eitt stærsta kjólatrendið í dag. Stórar og skarpar ‘eighties‘ axlir létu einnig sjá sig á kjólum nokkurra kvenna. Glamúrelement kvöldsins voru pallíettur og sáust þær til dæmis á kjólum Heidi Klum (í Michael Kors) og Kerry Washington (í Doo.Ri).
