Michael Jackson sem stíl íkon
Poppgoðið Michael Jackson setti mikinn svip á tískuna í gegnum árin með skrautlegum sviðsbúningum sínum og persónulegum stíl. Nú síðast sást hann nokkrum sinnum í flíkum frá Balmain tískuhúsinu sem er eitt allra heitasta merkið um þessar mundir. Það eitt sýnir að Jackson hafði gott tískuvit og margt sem hann hefur klæðist á ferli sínum varð að tískubólum um allan heim. Meira að segja tískustjóri franska Vogue, Emmanuelle Alt, sagðist munu gráta af gleði ef Jackson klæddist Balmain í fyrirhugaðri tónleikaferð sinni af því hún væri svo heltekin af stíl hans.
Fyrir utan hattinn og hanskann, hafa skrautlegir jakkar hafa verið hans einkennismerki, hvort sem þeir hafa verið í lúðrasveita- eða hermannastíl eða skreyttir pallíettum og glanssteinum. Rauði leðurjakkinn úr Thriller myndbandinu frá byrjun níunda áratugarins var eflaust eftirminnilegasta flík Jackson og gæti hann alveg eins passað inn í tískuna í dag enda hafa leðurjakkar í mótorhjólastíl verið vinsælir undanfarið. Þær sem vilja heiðra Jackson í sínum eigin stíl ættu að draga fram pallíettujakka eða rauðan biker leðurjakka við svartar niðurþröngar buxur og toppa lúkkið með hatti.
