Öfgakennd fegurð
Frá vinstri: Alice Dellal, Freida Pinto, Frida Giannini, Naomi Watts, Eva Herzigova.
Mikið er um partý og veislur af ýmsu tagi þegar tískuvikur ganga yfir og eitt flottasta teitið í Mílanó þetta misserið var haldið af Vogue tímaritinu. Tilefni partýsins var opnun sýningarinnar ‘Extreme Beauty in Vogue‘ sem skartar ljósmyndum af öfgakenndri fegurð og spanna þær 75 ára tímabil tímaritsins.
Gestgjafarnir voru Anna Wintour, ritsjóri hins ameríska Vogue, og Dolce & Gabbana dúóið, Domenico Dolce og Stefano Gabbana. Gestalistinn var stór og voru allnokkrar Hollywood stjörnur mættar en meðal þeirra voru Scarlett Johansson, nýtt andlit förðunarlínu Dolce & Gabbana, Eva Mendes, Kate Hudson, Naomi Watts og rísandi stjarna myndarinnar ‘Slumdog Millionaire‘, Freida Pinto.
Einnig sást fremsta fólkið í tískubransanum á borð við hönnuðina Fridu Giannini hjá Gucci, Karl Lagerfeld hjá Chanel og Miuccia Prada. Fyrirsætur fortíðar létu sig heldur ekki vanta en Eva Herzigova, Nadja Auermann og Claudia Schiffer pósuðu saman á rauða dreglinum. Þær voru allar í mjög svo skrautlegum kjólum en þessar reyndu fyrirsætur gefa góða mynd af þeirri fegurð sem hefur prýtt Vogue í gegnum tíðina.
Allir voru klæddir í sitt fínasta púss þegar þeir mættu í höllina Palazzo della Ragione sem er sögulegur og fallegur staður í Ítalíu og hentaði einstaklega fyrir opnun sýningarinnar. Meira að segja rokkaragellan Alice Dellal dressaði sig upp, og þá er nú mikið sagt. En þótt allir hafi verið voða fínir var ekki einungis klæðst kjólum, því bæði Lauren Hutton og Naomi Watts, völdu sér töff svartar dragtir. Alltaf gaman að sjá stjörnurnar velja sér eitthvað annað en öruggan kjól.
