Opnunarpartý Chloé
Efri röð: Kate Bosworth, Hannah MacGibbon, Chloë Sevigny, Zoe Saldana, Rachael Taylor, January Jones. Neðri röð: Leighton Meester, Camilla Belle, Nicky Hilton, Estelle, Lake Bell.
Í síðasta mánuði var opnuð ný Chloé verslun í Los Angeles og í tilefni af því var haldið heljarinnar opnunarpartý á fimmtudagskvöldið síðasta þar sem gestirnir voru ekki af verri endanum. Gestalistinn var svo troðinn að ekki var hægt að halda partýið í verslunni sjálfri og mættu stjörnurnar því í Milk Studios til að fagna opnuninni. Yfirhönnuður Chloé, Hannah MacGibbon var auðvitað á staðnum ásamt vel klæddum Hollywood stjörnum.
Kate Bosworth og Chloë Sevigny voru heiðursgestir kvöldsins, enda miklir aðdáendur Chloé. Kate klæddist demantsskreyddum toppi úr forhaustlínu Chloé ásamt sítrónulituðu skósíðu pilsi úr haustlínunni. „Ég elska að þú getur farið á milli lína og blandað svo mörgum flíkum saman," sagði leikkonan um ást sína á franska tískuhúsinu. Hannah MacGibbon hefur aðeins verið við stjórn Chloé í rúmt ár en hún hefur fengið góða dóma fyrir hönnun sína fyrir merkið.
Chloë Sevigny, sem klæddist mínístuttbuxum og víðum blazerjakka með hringjaformum á brúnunum úr sumarlínu Chloé, sagðist vera aðdáandi merkisins til margra ára. „Ég hef alltaf tengt Chloé við rómantík, kvenleika og fegurð. Það er eitthvað svo klassískt og tímalaust við flíkur Hönnuh." Margar stjörnurnar klæddust lykilflíkum úr sumarlínu Chloé, en þeirra á meðal voru Zoe Saldana í hvítum kjól og Leighton Meester í bronsuðum kjól við skó frá Christian Louboutin fyrir 3.1 Phillip Lim.
Hönnuðurinn sjálfur, Hannah MacGibbon, klæddist rauðum leðurstuttbuxum úr sumarlínunni sinni við hnéhá rúskinsstígvél. MacGibbon hefur greinilega viljað lit í sinn klæðnað en rauðu stuttbuxurnar voru einar af fáum flíkum í línunni sem ekki voru í hlutlausum litum líkt og hvítum og húðlituðum. Þrír gestir ákváðu þó að klæðast svörtu en það voru stjörnustílistinn Rachel Zoe í einnar axla síðkjól, söngkonan Estelle í stuttbuxnasamfesting og Camilla Belle í síðerma míníkjól með krókódílaáferð.
Aðrir gestir sem prýddu gráa dregilinn voru smekklegri Hilton systirin, Nicky Hilton, í svarthvítum hlébarðakjól við svartar sokkabuxur og ökklastígvél; ástralska leikkonan Rachael Taylor í klofsíðum harem buxum við silfraðan langermabol; January Jones í hvítum dreiperuðum kjól með fölbleiku belti í mittið; Molly Sims í doppóttum kjól við Chloé slaufuhæla; Amber Valletta í sumarlínu Chloé; og tennisstjarnan Maria Sharapova klædd kjól úr forhaustlínunni.
