Partýpíur London
Innan tískuheimsins er London þekkt fyrir upprennandi hönnuði sem koma með eitthvað nýtt og framúrstefnulegt fram á sjónvarsviðið. Stíllinn í London endurspeglast svolítið af því ef marka má 'socialite' stelpur London sem eru talsvert djarfari í klæðaburði en þær frá New York. Partýpíur Londonborgar eru flestar frægar fyrir að vera frægar, eiga þekkta foreldra eða vinna fyrir sér í fyrirsætu- eða sjónvarpsstörfum.
Ofurfyrirsætan Agyness Deyn er eflaust þekktasta nafn þessara fimm stúlkna sem eru aðalefni breskra slúðurblaða. Deyn hefur mjög litríkan stíl og tekur tískuna ekki of alvarlega. Hún er undir svolitlum pönkáhrifum með mótorhjólaleðurjökkum, Doc Martens skóm, gaddaskreyttum Converse strigaskóm ásamt grunge áhrifum í formi köflóttra skyrta. Hún á einnig minni pönkaða hlið þar sem hún klæðist flíkum með földnum húmor, hvort sem það eru sérstök munstur, snið eða grafík.
Bresk-brasilíska fyrirsætan Alice Dellal er enn pönkaðri en Agyness, og sýnir hárgreiðsla hennar það eflaust best. Dellal er krúnurökuð á annarri hlið höfuðsins og með restina af hárinu greitt á hina hliðina. Dellal getur stundum litið út eins og hún sé heimilislaus, enda klæðist hún oft rifnum sokkabuxum við snjáðar gallastuttbuxur og mótórhjólaleðurjakka. Dellal getur þó einnig sjænað sig til og koma þar svartir kjólar í ýmsum útgáfum við sögu.
Yngsta partýpía London er Pixie Geldof, en hún byrjaði að stunda partývettvang borgarinnar um fjórtán ára gömul, en er núna átján ára. Líkt og Alice og Agyness er mótorhjólaleðurjakki hennar aðalflík en hún pönkar hann upp með gylltum göddum. Köflóttar skyrtur eru ekki sjaldséðnar á Pixie, en hún glamúrerar svo pönkútlitið með háum hælum. Eitt flottasta par Pixie þessa stundina eru án efa Iman hælarnir frá Gucci en þeir sýna vel að Pixie getur dressað sig upp þegar svo ber undir.
Eldri systir Pixie, Peaches Geldof, er tvítug og hefur sannað sig sem sjónvarpskynnir ólíkt systir sinni sem hefur ekki farið út á vinnumarkaðinn enn. Peaches er kvenlegri í klæðaburði en fyrrnefndu stelpurnar. Hún klæðist mikið kjólum í gamaldags sniðum, auk kápa með loðkraga en hún gengur mikið með leðurtöskur í vintagestíl. Hún virðist einstöku sinnum fá köflóttu skyrtuna og leðurjakkann frá systur sinni lánaðan og getur því varíerað milli fínlegs og grófari stíls eftir skapi.
Annar sjónvarpskynnir, Alexa Chung, hefur verið mikil tískufyrirmynd í Bretlandi síðustu ár. Alexa á meira sameiginlegt með stíl Peaches en hinna stelpnanna – kvenlegur með vintage yfirbragði. Alexa mun þó ekki vera partýpía í London mikið lengur þar sem hún flutti til New York fyrr í mánuðinum, en þar mun hún stýra eigin þætti fyrir MTV sjónvarpsstöðina. Gaman verður að sjá hvort London stíllinn víkur fyrir New York áhrifum á komandi mánuðum.
