Smart Sydney stíll

69171242408006stillsydney.PNG

Rosemount tískuvikan átti sér nýlega stað hinum megin á hnettinum, í Sydney, Ástralíu. Þar var samankomið allt helsta tískufólk Eyjaálfunnar auk áhugasamra annars staðar að úr heiminum til að sjá heitustu tískustrauma Ástralíu fyrir vor og sumar 2009-10 sem hefst í september. Það gera sér kannski ekki allir grein fyrir því að það er mikil tískuvitund í Sydney og var því urmull af smart klæddu fólki þar samankomið um mánaðarmótin síðustu.

Ástralskir hönnuðir eru margir ekki enn komnir inn á tískuradar í restinni af heiminum en tískuvikan er þó á radar vinsælustu götustílsbloggaranna sem voru mættir til að mynda allar tískudömurnar og –herrana. Þó að Ástralía sé langt í burtu frá tískuborgunum New York, London, Mílanó og París voru tískuvikugestir alveg með það á tæru hvað er heitt núna þar sem þeir sportuðu ýmsum af helstu sumartrendunum.

Það virðist sem veðrið hafi verið nokkuð gott í Sydney á meðan á tískuvikunni stóð. Eitthvað sást af loðfeldum, jökkum og sokkabuxum en sólgleraugu, stuttbuxur og pils voru þó ekki langt undan sem segir okkur að sólin hafa eitthvað látið sjá sig. Miðað við þessa veðurkenningu má telja myndirnar að ofan góða hugmynd fyrir klæðnað okkar Íslendinga núna í byrjun sumars þar sem hlýtt er í veðri en þó ekki nógu hlýtt.

Götutískan í Sydney einkennist af svölu attitjúdi. Harem buxur virtust vinsælar, sem og rifnar gallabuxur. Svart og hvítt var mikið parað saman og drapplitað var sérstaklega áberandi í skóm. Litirnir voru með hlutlausara móti en samsetningarnar og flíkurnar sjálfar voru einstaklega flottar. Skórnir spiluðu stóra rullu en þeir voru alls ekki af verri endanum og voru meðal annars bönd og reimar vinsælt á skóm. Af myndunum að dæma eru Ástralíubúar vel stíliseraðir og kunna svo sannarlega að klæða sig.