Stíliseraðar stjörnur beggja vegna Atlantshafsins

96041244247407stillmtvglamour.PNG
Alexa Chung; Miley Cyrus; Amanda Seyfried; Rumer Willis; Becki Newton; Rosie Huntingdon-Whiteley; Jacquetta Wheeler; Sienna Miller; Leighton Meester.

Tveir stjörnuviðburðir tóku sér stað síðustu vikuna. Á sunnudaginn voru MTV kvikmyndaverðlaunin veitt í borg englanna í Bandaríkjunum og á þriðjudaginn hélt Glamour tímaritið verðlaunaafhendingu fyrir konu ársins í Bretlandi. Á báðum þessum viðburðum var mikið af stjörnum sem voru bæði flott og ljótt klæddar en hér verður farið í síliseruðustu stjörnur kvöldanna frá tveimur heimsálfunum. Í London skinu skærustu stjörnurnar á rauða dreglinum klæddar í flotta kokkteilkjóla. Á MTV hátíðinni voru mættar allar ferskustu stjörnurnar úr skemmtanabransanum. Þar fékk Gossip Girl leikkonan Leighton Meester hiklaust A fyrir djarfleika enda ekki á hverjum degi sem stjörnur geta verið í gegnsæju á fágaðan en jafnframt töff hátt.

Drapplitað er eins og flestir vita einn af heitustu litum sumarsins. Það eru tvenns konar leiðir sem best er að fara í drapplituðum fatnaði og það er að annað hvort para litinn við svarta aukahluti eða aðra drapplitaða. Alexa Chung ákvað að fara þá fyrri á Glamour verðlaununum þar sem klæddist kjól með rufflusmáatriðum á öxlunum við Chanel hæla og svarta vatteraða tösku. Alexa fékk verðlaun sem besti sjónvarpskynnirinn á verðlaununum en hún gaf sér tíma til að fljúga frá New York þar sem hún býr núna til London til að taka á móti verðlaununum. Miley Cyrus klæddist einnig drapplituðu á MTV hátíðinni í Los Angeles í kjól frá Moschino Cheap & Chic með ótrúlega flott skart úr Elizabeth & James línu Olsen tvíburanna.

Geómatrísk og abstrakt form sáust á kjólum þeirra Amanda Seyfried (Mamma Mia) og Becki Newton (Ugly Betty) í London en Rumer Willis, dóttir Demi Moore og Bruce Willis, klæddist einnig trendinu í Bandaríkjunum tveimur dögum áður. Amanda og Becki völdu að para kjólinn við skó með ótal böndum sem virðist vera óvenju vinsælt skótrend meðal stjarnanna núna. Eins og sést á stöllunum þremur skiptir ekki máli hvort kjólinn sé hlýralaus, með einum hlýra eða áberandi axlastærð – aðalmálið er munstrið sé alsett einhvers konar formum og litum. Þess má geta að kjóll Amöndu er frá töff hönnunardúóinu Peter Pilotto.

Pallíettur eru virkilega heitar núna hvort sem um ræðir kjóla, toppa eða jakka. Fyrirsæturnar Rosie Huntingdon-Whiteley og Jacquetta Wheeler völdu báðar Gucci fyrir Glamour kvöldið og voru þær mjög glamúrlegar. Rosie ákvað að vera berleggja í töff ökklahælum með opinni tá á meðan Jacquetta valdi að klæðast leggings við silfraða Gucci toppinn. Það sem gerir kjólinn áhugaverðan er keðjuhálsfestin sem rokkar kjólinn upp en það getur verið flott að klæðast svipuðu hálsmeni við pallíettur til að koma með svolítið óvæntan tvist á pallíettutrendið. Á kvikmyndahátíð MTV var Sienna Miller í grænum pallíettukjól úr eigin merki, Twenty8Twelve, en kjóllinn er akkúrat í heitasta sniðinu núna; síðerma mínípallíettukjóll með stórum öxlum.