Stjörnum prýtt galakvöld

48621241563399stillmetgala.PNG
Efri röð: Kate Hudson, Stella McCartney, Liv Tyler, Kate Bosworth - allar í Stella McCartney; Selma Blair, Victoria Beckham, Anne Hathaway - í Marc Jacobs. Neðri röð: Rihanna, Molly Sims - í Dolce & Gabbana; Leighton Meester, Kerry Washington, Madonna - í Louis Vuitton; Lou Doillon, Tory Burch - í Nina Ricci; Ashley Olsen í eigin línu The Row.

Í gærkvöldi var hið árlega galakvöld, Costume Institute Gala, haldið í Metropolitan listasafninu í New York. Viðburðurinn er stærsti sinnar tegundar innan tískuheimsins en þar mæta allir helstu hönnuðir heims með stórstjörnur upp á arminn klæddar í þeirra hönnun. Eins og Tískuheimur.is greindi frá fyrir nokkru eru það hönnuðurinn Marc Jacobs, fyrirsætan Kate Moss og söngvarinn og hönnuðurinn Justin Timberlake sem voru heiðursgestgjafar kvöldsins, að ógleymdri Önnu Wintour, ritstjóra Vogue.

Marc Jacobs og Louis Vuitton voru án efa vinsælustu merkin til að klæðast en meðal þeirra sem klæddust kjólum úr línu Jacobs voru Anne Hathaway, Selma Blair, Winona Ryder og Victoria Beckham, sem hafði greinilega farið í brúnkusprautun fyrir kvöldið. Þær dömur sem völdu að klæðast Louis Vuitton, þar sem Jacobs er yfirhönnuður, voru Debbie Harry, Kerry Washington, Gossip Girl stjarnan Leighton Meester og poppprinsessan Madonna sem mætti með kanínueyru úr haustlínu Vuitton, en hún er einmitt andlit sumar- og næstu haustlínu franska tískuhússins.

Athygli vakti að Chanel hönnuðurinn Karl Lagerfeld mætti ekki á galakvöldið en það þýddi þó ekki að hann hafi ekki dressað nokkrar stjörnur. Anna Wintour var í svarthvítum síðkjól frá Chanel með stóru dropamunstri og Diane Kruger og Kirsten Dunst voru báðar í hátískulínu Chanel. Hönnuðurinn Stella McCartney klæddi einnig þrjár stjörnur fyrir kvöldið en það voru leikkonurnar Liv Tyler, Kate Hudson og Kate Bosworth. Sjálf var McCartney í skemmtilegum blúndusamfestingi sem var öðruvísi en allir kjólarnir. Bæði Tyler og Hudson voru í glitrandi pallíettusíðkjólum.

Meira var um stutta kjóla nú en fyrri ár á galakvöldinu þar sem síðkjólar hafa verið venjan. Molly Sims var í gylltum kjól frá Dolce & Gabbana með stórum öxlum, January Jones var einnig í gylltum míníkjól frá Michael Kors, Jessica Alba klæddist stuttum kjól frá Jason Wu en í stað þess að hafa leggina bera var hún í svörtum sokkabuxum og að lokum var Rachel Bilson í ermalausum, grænum míníkjól frá Bally. Þeir litir sem voru mest áberandi í kjólum, bæði síðum og stuttum, voru rauður og blár og var litagleðin yfir höfuð nokkuð mikil.

Sú sem var hvað frökkust í ár og storkaði algjörlega dresskóðanum um að klæðast kjól, var söngkonan Rihanna sem mætti í svartri dragt frá Dolce & Gabbana. Jakkinn var með púffuðum öxlum sem gaf dragtinni öðruvísi tvist. Það voru þó nokkrar aðrar dömur sem þorðu að klæðast buxum og er ein af þeim leikkonan Lake Bell sem mætti einnig í svartri dragt, þó aðeins klassískari en Rihönnu. Bell toppaði lúkkið með pípuhatti og lakkrísbindi á meðan Rihanna valdi þverslaufu.

Þar sem þema kvöldsins voru fyrirsætur sem andagift voru fyrirsætur miðpunktur kvöldsins, bæði úr fortíðinni sem og ný og fersk andlit. Vegna óhemjumagns af fallegum kjólum og miklum fjölda smart galakvöldsgesta mun klæðnaður fyrirsætanna vera tekinn fyrir á Tískuheimi.is á morgun en þá verður hægt að sjá Kate Moss með sérstakt höfuðfat hannað af Stephen Jones, Miranda Kerr í djörfum kögurkjól og Claudia Schiffer í mögnuðum kjól frá Versace. Vertu viss um að kíkja á Tískuheim.is á morgun fyrir framhaldið af Costume Institute galakvöldinu.