Stjörnurnar á fremsta bekk hátískusýninganna
Efri röð: Thandie Newton, Isabel Lucas, Vanessa Traina, John Galliano og Marion Cotillard. Neðri röð: Megan Fox og Cate Blanchett, Gaia Repossi og Vanessa Traina, Vahina Giocante, Kylie Minogue.
Ekki var eins margt um manninn á hátískuvikunni í París sem haldin var í byrjun júlí eins og áður, og hefur kreppan ábyggilega eitthvað með það að gera. Athygli vakti að bæði ritstjórar ameríska og breska Vogue, þær Anna Wintour og Alexandra Shulman, létu ekki sjá sig. Mikið var þó af innlendu fólki, frönskum leikkonum og dömum úr samkvæmislífinu, en einnig nokkrar Hollywood stjörnur. Kylie Minogue ákvað til dæmis að kíkja á sýningu Jean Paul Gaultier og má hér að ofan sjá Kylie ásamt hinum sýningargestunum í smart múnderingum.
Fyrsta sýningin var hjá Dior en þar var franska leikkonan Marion Cotillard, enda andlit Dior. Næsta sýning var svo hjá Giorgio Armani þar sem hann sýndi Armani Privé línuna sína og sátu leikkonurnar Megan Fox og Cate Blanchett á fremsta bekk. Þar var einnig franska leikkonan Vahina Giocante. Á Givenchy sýningunni sáust þær Gaia Repossi og Vanessa Traina meðal gesta. Repossi er hluti af Repossi skartgripaveldinu en Traina er dóttir metsöluhöfundarins Danielle Steel. Traina var í sérstaklega flottri samsetningu, líflegum blómakjól við biker leðurjakka.
Þá var komið að Chanel sýningunni sem vanalega hefur stjörnu prýdda fremstu röð. Vanessa Traina var þar aftur og klæddist kjól úr sumarlínu Givenchy. Isabel Lucas, meðleikkona Megan Fox í Transformes myndinni, var í fallegum kögurkjól. Frönsku leikkonurnar Élodie Bouchez og Anna Mouglalis, stjarna myndarinnar Coco Chanel & Igor Stravinsky, mættu báðar í litlum svörtum kjólum. Þegar allar sýningar hátískuvikunnar voru afstaðnar hélt Calvin Klein heljarinnar veislu þar sem Claire Danes og Thandie Newton létu sig ekki vanta.
